Posted On: February 1st 2025, 10:18 am
Elsku Gylfi okkar kvaddi okkur í gær ❤️
Gylfi var einstakur kisi sem kom inn í líf okkar þegar hann var orðinn 7 ára, hann var frekar fúll og vildi ekki mikið kúr en eftir nokkra mánuði af mikilli ást var hann byrjaður að sofa á milli okkar, á koddanum mínum með andlitið sitt helst grafið inn í mitt ❤️ Gylfi elskaði athygli og gott klapp, en eftir við fluttum í Garðabæ eyddi hann miklum tíma á daginn í skartgripabúð þar sem hann var með sitt eigið bæli, fékk endalausa athygli, knús og klapp. Eftir daginn kom hann rétt svo heim að borða og var svo farinn aftur út til að mæta vaktina sína á kaffihúsinu í hverfinu.
Gylfi var miklu meira en bara kisa á okkar heimili en hann var fjölskyldumeðlimur og litla barnið okkar, það var því ótrúlega erfitt þegar hann var greindur í fyrra með lokastig hjartabilunar, settur á mörg lyf og gefið aðeins nokkrar vikur. Gylfi náði 7 mánuðum eftir greiningu sem við erum óendanlega þakklát fyrir ❤️
Gylfi mun lifa í minningum okkar alltaf og auðvitað í öllum þúsundum mynda sem ég á af honum, elska þig alltaf elsku besti kallinn minn ❤️
Load More