Posted On: February 25th 2024, 05:25 pm
Konudagurinn. Fór á 4. fyrirlesturinn um refilsauminn í Þjóðminjasafninu. Í 25 ára gömlu ullarjersey dragtinni minni frá EAST. En það er mikil kerlingabúð, sem enginn sækir nema ég. Dragtina hef ég stagbætt í klofinu og á báðum olnbogum. Ekki með refilsaumi, sem Elsa kenndi mér þó. Hlý og góð dragt. Líka með gömlu járnnæluna mína frá Next 1982. Mynd af mömmu í nælunni, hún 1 árs, en mamma hefði orðið 100 ára á þessu ári. Mamma gaf mér blússuna í 55 ára afmælisgjöf.