Posted On: April 22nd 2025, 10:14 pm
Persónulegt video af mér og yndislega kærastanum mínum að tala um mín andlegu veikindi og hvernig það er að vera aðstandandi 💕- auðvitað náði ég að tala í meira en 20 mín…en það má greinilega ekki tala lengur á insta😅
Mæli með að ná í popp og horfa á! Þetta video er fyrir alla til að skilja aðeins betur og þora að tala um hluti sem geta verið krefjandi 🩷
OCD hefur verið partur af mínu lífi og mun vera það út ævina mína💕við sem erum heppin að fá greiningu, berjumst samt sem áður við skömm.
10 ár frá því ég fékk greininguna mína og ég skammast mín ennþá, kanski ekki eins mikið því litla Sylvía ætlaði ALDREI að segja frá, afhverju ?! Af því að samfélagið finnst þetta óþægilegt… það finnst veikindin mín óþægileg…og margir vita ekki hvað OCD er þannig hvernig átti ég að þora🥺🩷
Takk allir mínu nánustu!🩷 ástin mín, fjölskylda, vinir, kunningjar og öll þið sem berjist við andleg veikindi og þið hin sem þurfið ekki að berjast en eruð tilbúin að læra og vera til staðar🩷