Instagram story viewer> @traunerinn> Post
3 months ago
Co Creator: prikid101 geoffreyskywalker daronkarl_
17
Posted On: July 30th 2026, 05:38 pm
Þetta er alternative útgáfa af myndbandinu Fuglar í Draumi og er í tímaröð miðað við upptökur á efninu.

Smá um ferlið:
@geoffreyskywalker heyrði í mér varðandi teaser fyrir fyrsta singulinn af óútgefinni plötu Daron Karls - Fuglar fyrir lagið Fuglar í Draumi. Ferskt lag og að mínu mati allt öðruvísi en það sem er í gangi núna.
Ég og Daron fengum frjálsar hendur og ég var með nokkur spot í huga og þá helst eitt í Hveragerði.

Tökudagur 1 var í @ruvgram en Daron hafði reddað því að fá að filma á Gettu Betur settinu sem var súrealískt og fyndið. Eftir þær tökur röltum við upp að Bensínstöðinni í Stóragerði sem var á þeim tíma stærsta kosningavælið og náðum skotum þar áður en hún var girt af.

Tökudagur 2: Daron sótti mig í stúdíóið og ég dröslaði fullt af kamerum og henti í baksætið á bílnum sem var troðfullt af dóti sem átti eftir að fara með í sorpu. Þar á meðal gamer stóll sem við notuðum í myndbandinu.
Planið var að bruna til Hveragerðis og filma á stað sem ég fann í rómantískri helgarferð með @hihildur. Á leiðinni þangað áður en við komum að Bláfjalla afleggjaranum sáum við hvað fjöllin voru sturluð. Snjór og mosi. Banger kombó.
Við ákváðum að beygja inn afleggjarann og skoða. Veðrið var fáránlega milt og tært og við einir í heiminum. Í Bláfjöllum tókum við ljósmyndina sem mun prýða coverið á plötunni sem er gefin út af Sticky Records og er hönnuð af Geoff og náðum mörgum skotum.
Hveragerði var svo sjúklega næs og vindáttin fullkomin fyrir skotin í gufunni sem var svo notað fyrir Canvas vídeóið á spotify fyrir singúlinn og ljósmynd úr sama sessioni er single artwork.

Seinasta takan var við vegglistaverk eftir @andartak_ og @mottandi. Í sækó vindi klifraði Daron upp á gám og um leið og við byrjuðum að filma byrjuðu fuglar að svífa yfir honum. Ljóðrænt.

Á föstudaginn seinasta kom svo lagið út ásamt myndbandinu og tónleikar á Prikinu daginn eftir. Að skapa á að vera gaman, flókið og erfitt. Gleymum ekki að leika okkur 👾
Comments (17)
hafdis_mary 2 months ago

hafdis_mary

Omg ég elska þetta frændi!!👏👏

sylviathorvalds 3 months ago
gusti.chef 3 months ago

gusti.chef

🙌🔥

opes_vs_vato 3 months ago

opes_vs_vato

Geggjað..🔥❤️🔥

ingibjorghogna 3 months ago
freyrmwaage 3 months ago

freyrmwaage

🙌🙌

countessmalaise 3 months ago

countessmalaise

hell yeah

emiliahugrun 3 months ago

emiliahugrun

🔥🔥🔥

erna_geirs 3 months ago

erna_geirs

Geggjað 🙌

ggaldur 3 months ago

ggaldur

🔥🔥🔥

yf1rum 3 months ago

yf1rum

Vel gert👏

magnusgudberg 3 months ago
freyr_arnason 3 months ago
bennib.ruff 3 months ago
daronkarl_ 3 months ago

daronkarl_

👏😮‍💨

Load More

More posts

back to up