Instagram story viewer> @gerdarsafn> Posts
4.1K
followers
1916
following
Framsækið samtímalistasafn í Kópavogi stofnað til heiðurs Gerði Helgadóttur (1928–1975).
Opið 12-18 alla daga
POSTS STORIES REELS TAGGED
Download All
“Embroidered Echoes” — Audiovisual Performance & Installation(28 August 2026)

A self-portraitive stage work and material exploration, where sound, everyday visual elements, interactive textiles, and the dressed body converge through improvisation rooted in the Perfect Score(2024).

🧡
Presented at: @hamraborg_festival @gerdarsafn 
Technical Support: @olli_steini
Sound: @olli_steini @petureggerts 
Outfit & Textile: @songzhu1992
Photography: @sigridurmarrow(Photos 1–11) taken in Gerðarsafn Kópavogur Art Museum by @gerdarsafn
11
2 days ago
Download
Rýnt í verk Valgerðar Briem með Brynju Sveinsdóttur
11. október
15:00-16:00

Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn um sýninguna Valgerður með Brynju Sveinsdóttur safnstjóra Gerðarsafns klukkan 15:00 sunnudaginn 11. október.
Í leiðsögninni mun Brynja fjalla um lykilverk Valgerðar og gefa gestum betri innsýn inn í vinnuferil Valgerðar og tilurð verkanna.

Nánar um sýninguna:
Valgerður Briem (1914–2002) var myndlistarkona, kennari og frumkvöðull á sviði myndmenntar. Ævistarf hennar mótaðist í samspili eigin listsköpunar og kennslu, þar sem form, litir, efni og sjónræn hugsun urðu að leiðarljósi. Valgerður steig fyrst fram opinberlega sem myndlistarmaður á Haustsýningu Félags íslenskra myndlistarmanna árið 1980, þá 66 ára. Að baki þeirrar stundar lágu áratugir af einbeittri vinnu: teikningar, vatnslitir, vaxmyndir, skissur, letur og mynstur. Þegar fjölskylda Valgerðar færði Gerðarsafni um 1.640 verk á pappír árið 2006 varð umfang þessa ævistarfs fyrst fyllilega sýnilegt.

-

You are warmly invited to a guided tour of the exhibition Valgerður with Brynja Sveinsdóttir, Director of Gerðarsafn, at 15:00 on Sunday, 11th of October.
During the tour, Brynja will discuss key works by Valgerður and offer visitors deeper insight into the artist’s creative process and how Valgerður developed her works.
 
More about the exhibition:
Valgerður Briem (1914–2002) was an artist, teacher and pioneer in the field of art education. Her life’s work developed through the interplay between her own artistic practice and her teaching, with form, colour, material and visual thinking at its core. Valgerður first exhibited publicly as an artist at the Autumn Exhibition of the Association of Icelandic Artists in 1980, at the age of sixty-six. Behind that moment lay decades of sustained work: drawings, watercolours, wax works, sketches, lettering and patterns. When Valgerður’s family donated approximately 1,640 works on paper to Gerðarsafn in 2006, the true scope of her life’s work became fully visible for the first time. taken in Gerðarsafn Kópavogur Art Museum by @gerdarsafn
0
3 days ago
Download
Morgunstundir í myndlæsi hefjast á ný 9. október!
 
Fyrsti viðburður vetrarins er föstudaginn 9. október kl. 10:00 í Gerðarsafni, þar sem við tökum fram óvænt verk úr safneign Gerðarsafns og greinum það í sameiningu. Þorgerður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri safneignar í Gerðarsafni, leiðir samræðurnar, sem gestir taka þátt í.
 
Viðburðurinn er á íslensku
 
Morgunstund í myndlæsi er viðburðaröð fyrir fullorðna í Gerðarsafni þar sem farið verður eftir aðferðum Sjónarafls. Sjónarafl er kröftugt fyrirmyndarverkefni Listasafns Íslands sem snýr að þjálfun myndlæsis fyrir börn í tengslum við námsskrá skólanna. Með því að nota þær aðferðir sem kynntar eru í Sjónarafli fá þátttakendur lykla sem auðveldar þeim að njóta myndlistar.
 
Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu og það verður heitt á könnunni.
Verkefnið er stutt af Safnasjóði
 
Dagskrá morgunstunda 2026 er eftirfarandi:
9. október - 10:00 - 11:00
23. október - 10:00 - 11:00
6. nóvember - 10:00 - 11:00
20. nóvember - 10:00 - 11:00
4. desember - 10:00 - 11:00
-
Mornings of Visual Literacy returns on 9th of October!
These events are designed for adults and take place on Friday, October 9th at 10:00 at Gerðarsafn Art Museum, where we will bring out an artwork from the museum’s collection and explore it together. The discussion will be led by Þorgerður Þórhallsdóttir, Collection Project Manager at Gerðarsafn, with active participation from attendees.
 
The event will be conducted in Icelandic.
 
Mornings of Visual Literacy is an event series at Gerðarsafn based on the methods of Sjónarafl. Sjónarafl is an powerful educational initiative developed by the National Gallery of Iceland, focusing on visual literacy training for children in connection with the national school curriculum. By using the methods introduced through Sjónarafl, participants gain tools that help them engage with and enjoy visual art.
 
Participation is free of charge and there will be coffee.
The project is supported by the Icelandic Museum Fund.

The schedule for Mornings of Visual Literacy in 2026 is:
9th of October, 10:00–11:00
23rd of October, 10:00–11:00
6th of November, 10:00–11:00
20th of November, 10:00–11:00
4th of December, 10:00–11:00 by @gerdarsafn
0
3 days ago
Download
Vantar þig kort? ✍️🌹
 
Nýlega létum við búa til tvö ný tækifæriskort með þessum dásamlegu teikningum eftir Valgerði Briem.
Kortin ertu prentuð af @letterpress.is á þykkan og áferðarfallegan pappír.
Vegleg kort sem henta fyrir hvaða tilefni sem er. by @gerdarsafn
0
5 days ago
Download
Mydband frá síðasta gjörningakvöldi! Video documentation of the last Performance Night at Gerðarsafn! 🤖
Sæborg in mri: Michael Richardt og Egill Ásdísarson. 
Gjörningakvöld | Performance Night, 28. Ágúst. 

⭐️Michael Richardt er söngvari og listamaður sem sérhæfir sig í tíma-tengdum og langtímagjörningum. Hann vinnur með myndbönd, ljósmyndir, skúlptúr, ritun, dans og tónlist. 
Egill Sæborg Ásdísarson varð sannkallað sæborg (e. cyborg) eftir DBS heilaörvunaraðgerð vegna Parkinsons heilkennis. Þessi háþróaða aðgerð felur í sér nákvæmlega staðsett rafskaut sem eru grædd í ákveðin heilasvæði, svo sem undirstúkukjarna og bleikhnetti, sem eru nauðsynleg til að stjórna hreyfingum.
⭐️Michael Richardt is a singer and performance artist specialising in time-based and long-durational performance. His practice includes video, photography, sculpture, writing, dance, and music. Egill Sæborg Ásdísarson is an electronic musician, who became a true cyborg following his Deep Brain Stimulation (DBS) surgery for Parkinson’s disease. This advanced procedure involves precisely positioned electrodes implanted in specific brain regions, such as the subthalamic nucleus and globus pallidus, which are essential for regulating movement and managing motor symptoms.

📹Hrafnkell Tumi Georgsson taken in Gerðarsafn Kópavogur Art Museum by @gerdarsafn
2
5 days ago
Download
Valgerður Briem, Sól í sjó, 1981 💛
Túss á pappír
21 x 15 cm hver mynd

Myndirnar eru byggðar úr örfáum formum: hring, línum og auðum pappír. Titillinn beinir sýninni að hafi og sól, þótt myndin sé dregin upp í örfá form. Ein lína nægir til að opna sjóndeildarhring og auður flöturinn verður að víðáttu. 
Myndirnar halda sjóninni á mörkum landslags og abstraksjónar. Augað nemur sól og sjó, en jafnframt hring, strik og auðan pappír. Örlítil tilfærsla hrings eða línu breytir afstöðu sólar og sjávar og um leið allri dýpt myndarinnar.
Texti: Cecilie Gaihede.

Valgerður Briem (1914–2002) var myndlistarkona, kennari og frumkvöðull á sviði myndmenntar. Yfirlitssýning á verkum hennar stendur nú yfir í Gerðarsafni. 

//

The images are constructed from only a few elements: a circle, lines and untouched paper. The title directs the eye towards sea and sun, although the image itself is reduced to a handful of forms. A single line is enough to open up a horizon, while the blank surface becomes an expanse. 
The images hold vision at the threshold between landscape and abstraction. The eye perceives sun and sea, but also circle, line and blank paper. The slightest shift of a circle or line changes the relationship between sun and sea and, with it, the entire depth of the image.
Text: Cecilie Gaihede.

Valgerður Briem (1914–2002) was an artist, teacher and pioneer in the field of art education. A retrospective of her work is now on display in Gerðarsafn. by @gerdarsafn
0
6 days ago
Download
Hver var Valgerður Briem?

Valgerður Briem (1914-2002) átti marglaga aðkomu að íslenskri myndlist þó listsköpun hennar hafi lengi vel staðið utan meginfrásagnar íslenskrar listasögu. Hún var annálaður myndlistarkennari sem opnaði gáttir listrænnar hugsunar fyrir nemendum sínum. Hún var myndlistarkona sem vann myndaraðir og klasaverk sem reyndu á möguleika ólíkra aðferða í teikningu og grafík. Hún var einnig hugsuður sem skrifaði um þróun myndvits, mikilvægi myndlistarkennslu og þann fjársjóð sem býr í sköpun barna.
-

Who was Valgerður Briem?

Valgerður Briem (1914-2002) played a multifaceted role within Icelandic art although her artistic practice has long remained outside the dominant narrative of Icelandic art history. She was a renowned art teacher who opened up new avenues of artistic thought for her students. She was an artist who created series and clusters of works that explored different approaches to drawing and printmaking. She was also a thinker who wrote about the development of visual perception, the importance of art education, and the magic of children’s creativity. 

Valgerður Briem fæddist á Hrafnagili í Eyjafirði árið 1914 og ólst upp á Akranesi. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum árið 1934 og hóf sama ár kennslu við Austurbæjarskóla. Samhliða starfinu nam hún myndlist hjá Birni Björnssyni og Þorvaldi Skúlasyni og myndvefnað hjá Vigdísi Kristjánsdóttur. Á árunum 1945–1947 stundaði hún nám í myndlist og myndlistarkennslu við Konstfack í Stokkhólmi, þar sem hún kynntist framsæknum hugmyndum um myndsköpun barna, listiðnað og skapandi kennsluhætti.
-

Valgerður Briem was born at Hrafnagil in Eyjafjörður in 1914 and grew up in Akranes. She graduated from the Icelandic College of Education in 1934 and began teaching at Austurbæjarskóli that same year. Alongside her work, she studied art with Björn Björnsson and Þorvaldur Skúlason, and tapestry weaving with Vigdís Kristjánsdóttir. From 1945 to 1947 she studied art and art education at Konstfack in Stockholm, where she encountered progressive ideas about children’s art-making, applied art and creative approaches to teaching.

Samhliða kennslunni vann Valgerður hljóðlega að eigin myndlist. Hún v taken in Gerðarsafn Kópavogur Art Museum by @gerdarsafn
0
11 days ago
Download
Teiknikennsla og barnakrot Valgerðar Briem með Aðalheiði Lilju Guðmundsdóttur
30. 9. 2026
12:15-13:00
 
Verið velkomin á leiðsögn um sýninguna Valgerður með listheimspekingnum Aðalheiði Lilju Guðmundsdóttur miðvikudaginn 30. september klukkan 12:15-13:00. 
 
Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir (f. 1968) er sjálfstætt­starfandi fræðimaður á sviði listfræða, heimspeki og myndlistar. Árin 2010–2021 starfaði hún sem lektor og fagstjóri fræða við myndlistardeild Listaháskóla Íslands og kennir enn námskeið í listfræði við sama skóla og við Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt ýmsum verkefnum á fagsviðum listfræða og myndlistar, þar á meðal rann­sóknum, skrifum og sýningargerð. Rannsóknir hennar hafa aðallega beinst að samtíma myndlist, bókverkagerð listamanna og kynjafræðum innan lista. Aðalheiður Lilja lærði heimspeki við Háskóla Íslands og listheimspeki við Parísarháskóla 1, Panthéon-Sorbonne.
 
Aðgangur ókeypis og öll velkomin!

-
 
Welcome to a guided tour of the exhibition Valgerður with art theorist Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir, Wednesday 30th of September at 12:15. Aðalheiður wrote about Valgerður Briem’s influential career as an art teacher in the book Myndvit: The Legacy of Valgerður Briem, which was published alongside the exhibition.
 
Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir (b. 1968) is an independent researcher and writer in the field of art theory, philosophy and fine art. In the years 2010–2021, she worked as a lecturer and head of art theory and art history studies at the Fine Arts Department of the Iceland University of the Arts, where she is still teaching art theory courses as well as at the University of Iceland. She has carried out various projects in the fields of art theory and fine art, including research, writing and exhibition making. Her research is in the field of contemporary art, artists’ books and gender studies in the arts. From the year 2024, she is on the board of the Icelandic Art Center. Aðalheiður Lilja studied philosophy at the University of Iceland and philosophy of art at the University of Paris 1, Panthéon-Sorbonne.
 
Admission is free and everybody welcome taken in Gerðarsafn Kópavogur Art Museum by @gerdarsafn
0
12 days ago
Download
Í tilefni sýningarinnar Valgerður létum við útbúa slæður hannaðar útfrá teikningu Valgerðar Briem. Teikningin ber nafnið Smárinn en hún er ein af mörgum teikningum smáblóma sem Valgerður gerði fyrir Blómasjóð Akraneskirkju árið 1945.

Slæðurnar eru úr 100% silki og koma í tveimur litum. Þær eru 50 x 50 cm að stærð og því tilvaldar sem litlir hálsklútar.

Slæðurnar koma í gjafaöskju og kosta 10.900 kr. by @gerdarsafn
0
12 days ago
Download
Listheimspekingurinn Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir verður með leiðsögn um sýninguna Valgerður miðvikudaginn 30. september klukkan 12:15. Hún er ein höfunda bókarinnar Myndvit: Arfleið Valgerðar Briem þar sem hún fjallar um áhrifaríkan kennsluferil listakonunnar.
 
Aðgangur ókeypis og öll velkomin!
—
Art philosopher Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir will lead a guided tour of the exhibition Valgerður on Wednesday September 30th at 12:15. She is one of the authors of the book Myndvit: The Legacy of Valgerður Briem, in which she discusses the artist’s influential career as an educator.
 
Free admission and everyone is welcome!

🎥 @hrafnkelltumi taken in Gerðarsafn Kópavogur Art Museum by @gerdarsafn
0
14 days ago
Download
Verið velkomin í Sápukúlumálun með myndlistarkonununni Írisi Maríu Leifsdóttur, laugardaginn 26. September frá 13:00 – 15:00!
🫧🫧🫧
 
Smiðjan er ókeypis og opin fyrir alla aldurshópa!
 
Ráðlagt er að vera í fötum sem mega litast.
 
Hlökkum til að sjá ykkur!
—
Welcome to Soap Bubble Painting with artist Íris María Leifsdóttir on Saturday, September 26, from 13:00 to 15:00! 
🫧🫧🫧

The workshop is free of charge and open to all ages.

Participants are advised to wear clothes that can get stained.

We look forward to see you! by @gerdarsafn
0
15 days ago
Download
Í tilefni af nýopnaðri sýningu hér á Gerðarsafni, Valgerður, erum við spennt að kynna nýútgefna bók með leturteikningum eftir myndlistarkonuna og kennarann Valgerði Briem (1914-2002).
Bókin var unnin og hönnuð af Hrefnu Sigurðardóttur, en Valgerður Briem hugðist gefa leturteikningar sínar út á sínum tíma í svokallaðri Stafabók fyrir útsaum, þar sem notendur gátu valið sér letur fyrir útsaumsverkefni. Stafabókin kom ekki út á sínum tíma og er þetta í fyrsta sinn sem leturteikningar hennar koma saman út á prenti. by @gerdarsafn
0
19 days ago
Download
×

Download all media on this page

Photos Videos
back to up