Instagram story viewer> @huginn> Posts
POSTS STORIES REELS TAGGED
Download All
Elsku hjartastóra og hláturmilda Hrafnhildur á daginn í dag 🎊♥️ Að fá að upplifa með henni ævintýri og deila þrautum og sigrum eru forréttindi mín á hverjum degi. Njóttu þín ástin mín 🌷 Luv u! by @huginn
1
2 years ago
Download
Við Harry vinur minn mætum aftur til leiks innan skamms! #harryhole #harryholeseries #harryholeisback by @huginn
2
3 years ago
Download
16 ár í dag ❤️
Það heitir víst ekkert smart eins og silki- kopar- eða kristals- svo ég ætla að kalla það ævintýra-afmæli því ævintýri eru skemmtileg og þetta er mitt uppáhalds!
Lífið með þér er toppurinn elsku Hrafnhildur og ég hlakka til hvers einasta dags með þér 🥰 by @huginn
6
3 years ago
Download
3… 2… 1… Grikk eða glott!? by @huginn
0
4 years ago
Download
Stopp í London á leið heim frá Búlgaríu þar sem ég hef verið að sjá og ræða um leikhús. Auðvitað var leikhús í London líka! by @huginn
0
4 years ago
Download
Góðan dag Búlgaría. by @huginn
1
4 years ago
Download
Legoland dagur 2! by @huginn
2
4 years ago
Download
Fyrir 15 árum síðan sagði hún já ❤️ Þremur börnum, smáum sigrum og stórum og ótal gleðistundum síðar göngum við hönd í hönd inn í næstu 15. Ég sé ekki sólina fyrir henni og þakka fyrir það að hún vaknar á hverjum degi og segir aftur já! Ég elska þig Hrafnhildur ❤️ by @huginn
7
4 years ago
Download
Í kvöld frumsýnum við Söngleikinn @[1844227439300480:Ljóska í gegn (Legally Blonde)]!

Þetta hefur verið stórkostleg rússíbanareið! Þessi söngleikur hefur lengi verið í sigtinu hjá okkur í söngleikjadeildinni og þegar við losnuðum loks undan fjarlægðar takmörkunum á æfingum og sýningum fannst okkur tilvalið að láta slag standa. Verkið er mjög krefjandi, með ótal fjölbreyttum lögum í ólíkum stíl. Auk þess krefst það gífurlegs úthalds og einbeitni auk mikillar dansþjálfunar sem @[585041083:Audur Bergdís] hefur stýrt með glæsibrag.

Ein nýbreytni í vetur hefur verið samvinna milli Söngskóla Sigurðar Demetz við FÍH og MÍT, en nemendur þar mynda hina krafmiklu hljómsveit söngleiksins sem @[638614096:Ingvar Alfreðsson] stjórnar listilega. Þetta samstarf er lyftistöng fyrir stofnanirnar og vonandi er það komið til að vera.

Krafturinn, metnaðurinn og leikgleðin í hópnum er sannkölluð vítamínsprauta og þó það hafi margt gegnið á við æfingar þá hefur hópurinn tekist á við það allt saman af fagmennsku, æðruleysi og með brosi á vör.

Verkið sjálft hefur stórt hjarta sem hópurinn miðlar af örlæti og einlægni. Fólk heldur kannski að það eigi von á bleikri froðu (og það fær svo sannarlega vænan skamt af henni!) en líka mikilvægan boðskap um mikilvægi þess að standa saman og enn fremur að standa með sjálfum sér. Því það að vera samkvæmur sjálfum sér dettur aldrei úr tísku!

Ég er gífurlega stoltur af öllum sem stíga á stokk í sýningunni, að tala um heiður og ánægju er engan veginn nóg til að lýsa þeim tilfinningum sem bærast mér í brjósti eftir þetta ævintýralega ferli. @[561784796:Þór], @[715553449:Jana Maria] og allt hitt samverkafólk mitt, ykkur þakka ég frá innstu hjartarótum fyrir að fylgja mér í þessa vegferð, án ykkar hefði þetta ekki verið hægt! by @huginn
0
4 years ago
Download
Topplisti Storytel þar sem Snjókarlinn í mínum lestri er í 5. sæti. Takk fyrir að hlusta :) #storytel #hljóðbækur by @huginn
1
4 years ago
Download
Frí by @huginn
2
5 years ago
Download
Bolludax... Finished product.
#pâteàchoux #chouxaucraquelin #semla #vegansemla by @huginn
7
5 years ago
Download
×

Download all media on this page

Photos Videos
back to up