Instagram story viewer> @iua_architecture> Posts
POSTS STORIES REELS TAGGED
Master’s students from the University of the Arts Iceland, the University of Luxembourg, and Paris Malaquais School of Architecture are collaborating on the studio Iceland–Laboratory in Reykholtsdalur.

@iceland_university_of_the_arts @ecolearchiparismalaquais @master.arch.lu 

#blendedintensiveprogramme 

Teaching team: 
@pierredavid.arch @claudia_nitsche @karlkvaran @sahar.ghaderi.kvaran and Florian Hertweck by @iua_architecture
1
11 days ago
Download
Meistaranemar í arkitektúr við Listaháskóla Íslands bjóða öll velkomin á spennandi sýningu í Listaháskóla íslands / Stakkahlíð 1 - Enni
Frá 24. september til 2. október verður til sýnis úrval verka eftir Teiknistofuna Óðinstorgi (1966-1986). Á sýningunni verða til sýnis líkön og teikningar sem unnar voru á fyrstu vikum haustmisseris 2026 í námskeiðinu “sameiginlegar rannsóknir fram til hönnunarlausna”. Líkön og teikningar skilgreina arkitektúr sem flókna samsetningu ólíkra þátta sem mynda byggingu þar sem tæknilegir og fagurfræðilegir eiginleikar, notagildi og upplifun rýmisins spila saman.Leiðbeinendur námskeiðsins eru Garðar Snæbjörnsson og Andri Gunnar Lyngberg Andrésson. Teiknistofan Óðinstorgi var stofnuð árið 1965 af bræðrunum og arkitektunum Helga og Vilhjálmi Hjálmarssonum ásamt verkfræðingnum Vífli Oddssyni. Á þessum 40 árum voru byggðar byggingar sem enn halda sjarma sínum og móta íslenska byggingarlist enn þann dag í dag.
Við hlökkum til að taka á móti þér á þessari hátíð íslenskrar byggingarlistar. 
Sýningin opnar fimmtudaginn 24. september kl. 16:00 – 18:00.
Sýningin er einnig opin: 
25. september 8:00 – 15:00
26. september 12:00 - 16:00
27. september 12:00 - 16:00
28. september – 2. október 8:00 – 15:00 by @iua_architecture
0
a month ago
Download
The fantastic work of the first year students led by @hildursteinthorsd by @iua_architecture
3
a month ago
Download
Studio Connections, MArch 2026-2027✨ by @iua_architecture
3
2 months ago
Download
Rás - 
Helena Ósk Kristjánsdóttir

Sjómennska hefur lengi mótað samfélag og atvinnulíf í Vestmannaeyjum. Með henni fylgja efni sem hafa lokið hlutverki sínu og verða eftir sem úrgangur, þar á meðal fiskinet. Rás er verkefni sem vinnur með hringrás efna og nýjar leiðir til að nýta auðlindir sem hráefni í stað þess að enda sem rusl.
Lagt er til að opnuð sé verbúð fyrir sjálfboðaliða og opið vinnurými þar sem unnið er með endurnýtingu og nýsköpun.
Fiskinet eru hér skoðuð sem hráefni sem hægt er að umbreyta og nýta áfram í nýju samhengi. 
Hönnunin byggir á rannsókn á hrauni, þar sem rásir, áferð og flæði verða innblástur að formi og efnisnotkun. Verkefnið kannar hvernig efni getur haldið áfram í nýrri rás.

/

Fishing has long shaped the community and economy of Vestmannaeyjar.
Consequently, materials that have reached the end of their use remain as waste, including fishing nets. Rás is a project focused on circular recycling, exploring new ways to use materials as resources rather than letting them become waste.
The proposal envisions a volunteer base alongside an open workspace dedicated to reuse and creative innovation. Discarded fishing nets are treated not as waste, but as a valuable material that can be reworked and given new purpose.
The design draws inspiration from lava formations, where its channels, textures, and flow shape both form and material use. The project explores how materials can continue along a new path. by @iua_architecture
4
2 months ago
Download
SÓLBOÐI - Irena Sveinsdóttir

„Tíminn læknar öll sár“.
Í landslagi Vestmannaeyja birtist þessi sögn á áþreifanlegan hátt, þar sem náttúran sjálf ber vitni um eyðileggingu en einnig um endurreisn. Í eldgosinu 1973 stækkaði eyjan um tvo ferkílómetra og þetta nýja land hefur að mestu verið ósnert síðan. Leiðarstefið verður andstæða forna móbergsins í norðurklettum eyjunnar og hins nýmyndaða lands, þar sem afsteypa af móbergi flytur brot af eldri jarðsögu inn í hið nýja og skapar um leið samtal milli fortíðar og framtíðar, tíma og rýmis. Verkefnið er verbúð fyrir tuttugu farandverkamenn í jarðefnaiðnaði. Að vinna efni úr jörðu og móta þau til uppbyggingar skapar beina hugmyndafræðilega tengingu við bygginguna. 

/

“Time heals all wounds.”
In the landscape of the Westman Islands, this sentiment manifests in a tangible and contested way, where nature carries the physical marks of both destruction and renewal. The 1973 volcanic eruption expanded the island by two square kilometers creating a territory that has remained largely untouched. The contrast between the ancient tuff of the northern cliffs and this new formed land serves as the project’s guiding theme. Incorporating a cast of the tuff brings fragments of older geological history into the new, a dialogue is established between past and future, time and space. The project provides residence for twenty migrant workers in the mineral extraction industry. The act of extracting materials from the earth and shaping them for construction establishes a direct connection between the workers craft and the architecture itself. 

/Verkefni til BArch gráðu/

Leiðbeinendur: Bjarki Gunnar Halldórsson, Karitast Möller, Guja Dögg Hauksdóttir og Helena Björgvinsdóttir taken in Listaháskóli Íslands by @iua_architecture
11
3 months ago
Download
SKIPAHELLIR-
Ellert Sigurðarson

Skipahellir er ný verbúð hönnuð með þarfirfiskvinnsluólks í huga. Byggingin rís við enda hafnarinnar þar sem nú er N1 sjoppa stendur Byggingin er samofin úr þremur rýmum, svefnálmu, samverurými verbúðarinar og sjoppu. Sjoppan er óður til sjoppumenningarinnar sem lifir enn góðu lífi í Vestmannaeyjum. og virkar sem samkomustaður sem tengir íbúa verbúðarinnar við íbúa Vestmannaeyja. Efniskennd byggingarinnar er sótt í nærumhverfið og sögu reitsins neðri hæðin er úr steypu sem vísar í landfyllingar og hafnarmannvirki,, efri hæðin úr timbri
sem vísar í handverk bátasmiða og að lokum er byggingin klædd reipi sem er tilvísun í sprangið.

/

Skipahellir is a residential hub designed for those working in the local fishing industry. Situated at the harbor’s edge, on the site currently occupied by the N1 kiosk, the building is organized into three parts: sleeping quarters, communal areas, and a local shop (sjoppa). The shop is a tribute to the „sjoppa“ culture that remains a vibrant part of life in the Westman Islands, even as it fades on the mainland. It serves as a social bridge, connecting the residents of the hub with the local community. The materiality is inspired by the site’s history and environment: the concrete base reflects the surrounding harbor infill, the timber upper floor honors traditional boatmaking, and the rope façade serves as a symbolic nod to the local art of „sprang“ (cliff-swinging).

/Verkefni til BArch gráðu/

Leiðbeinendur: Bjarki Gunnar Halldórsson, Karitast Möller, Guja Dögg Hauksdóttir og Helena Björgvinsdóttir taken in Listaháskóli Íslands by @iua_architecture
3
3 months ago
Download
HRÓFIN - á mörkum þess varanlega og hverfula
Bjarki Þór Wíum Sveinsson

Steinbryggjan stendur staðföst úr móbergi elsta hluta eyjunnar, sjálfum Heimakletti, táknmynd fastans, hins eilífa. Við hlið hennar rís andstæðan, tímabundin timburbygging, reist fyrir hverfula ábúendur: skýli sem stendur á stultum í höfninni, á stað uppsáturs báta liðinna alda. Byggingin er rannsókn á þeim rýmisgæðum sem búa í mannvirkjum og menningararfi eyjunnar; gæðum sem ef til vill voru aldrei skilgreind sem slík, en geta nú í nýju samhengi orðið sýnileg og öðlast nýtt líf. Með því að vinna með minni staðarins í formi, efnisvali og strúktúr dregur byggingin fram þessa rýmislegu möguleika og fléttar þeim inn í samtímaarkitektúr.

/

The stone pier stands firmly, hewn from palagonite tuff from the oldest part of the island, Heimaklettur, a symbol of permeance, and the eternal. Beside it rises its opposite, a temporary timber structure, built for its transient occupants. A shelter standing on stilts in the harbor, on the site where boats have been hauled ashore for centuries. The building draws attention to the spatial qualities that can be drawn from the island’s structures and cultural heritage. Qualities that may never have been defined as such, yet can become visible in a new context. By working with the memory of the place through form, material choice and structure, the building seeks to reveal these spatial possibilities and bring them into contemporary architecture.

/Verkefni til BArch gráðu/
Leiðbeinendur: Bjarki Gunnar Halldórsson, Karitast Möller, Guja Dögg Hauksdóttir og Helena Björgvinsdóttir taken in Listaháskóli Íslands by @iua_architecture
3
3 months ago
Download
SÆ - 
Hildur Ása Halldórsdóttir

Verkefnið SÆ byggir á upplifun af náttúru Vestmannaeyja og hafinu sem umkringir eyjuna, þar sem gesturinn skynjar smæð sína gagnvart náttúruöflunum. Út frá þeirri tilfinningu er sjónum beint að tengslum manns og sjávar, í samhengi við hvali og sögu svæðisins. Innblástur er sóttur til hvíthvala í Klettsvík og hugmyndin þróuð áfram í verbúð fyrir starfsfólk sem vinnur við umönnun hvalanna. Hönnunin endurspeglar hvernig hvalir laga sig að umhverfi sínu hverju sinni, með áherslu á flæði, lýsingu, ró og efniskennd. Lýsing er stór og mótandi þáttur í upplifun hönnunarinnar í byggingunni og hvernig notandinn skynjar sjálfan sig innan hennar. Með breytilegri birtu, skuggamyndun og sjónlínum myndast ferðalag í gegnum húsið, sem er í senn líkamlegt, sjónrænt og skynrænt. Lýsingin leiðir gestinn áfram, dregur fram ákveðin augnablik og róar önnur, líkt og hreyfingar hafsins og dýptir þess. 
 
 /

The project SÆ is rooted  in the visceral experience of the Westman Islands natural landscapes, where the vastness of the ocean highlights the profound scale of nature in relation to the individual. Inspired by the presence of beluga whales in Klettsvík, the project proposes a residency for their caregivers, exploring the intricate bond between humans, whales and the sea. The design reflects a whale’s fluid adaptation to its environment, prioritizing flow, light, tranquility, and tactile materiality.  Light is a significant defining element shaping how the user perceives both the spaces and their own presence within it. Through a choreography of shifting shadows and strategic sightlines, the building facilitates a sensory journey. Light guides the user, accentuating certain moments while softening others, echoing the rhythmic movements and mysterious depths of the ocean.

/Verkefni til BArch gráðu/

Leiðbeinendur: Bjarki Gunnar Halldórsson, Karitast Möller, Guja Dögg Hauksdóttir og Helena Björgvinsdóttir taken in Listaháskóli Íslands by @iua_architecture
1
4 months ago
Download
MIÐHÚS -
Óliver Andri Ásgeirsson

Byggingin rís úr hrauninu þar sem bærinn hvarf árið 1973 en undir yfirborðinu lifa enn hús, götur og minningar sem hafa dregið sig í hlé. Verkefnið leitast við að nálgast þessa földu sögu, ekki með því að afhjúpa hana strax, heldur með því að leiða vegfarandann niður, nær því sem liggur undir.
Í lægð í landslaginu mótast rýmislegt ferðalag þar sem hreyfing og jarðvegur fléttast saman. Byggingin verður hluti af þessari hreyfingu, hluti af landinu sjálfu. Hér er mynduð verbúð fyrir þá sem grafa og rannsaka, tímabundið heimili og vinnustaður þar sem fortíð og nútíð mætast í sama jarðlagi.

/

The building emerges from the lava where the town vanished in 1973, yet beneath the surface, houses, streets, and memories remain dormant. The project seeks to engage with this hidden history, not by immediate exposure, but by guiding the visitor downward, closer to what lies beneath.
Within a natural depression in the landscape, a spatial journey unfolds where movement and earth intertwine. The architecture becomes part of this motion, it becomes an extension of the land itself. This is a residence for those who excavate and explore; a temporary home and workspace where past and present converge within the same geological strata.

/Verkefni til BArch gráðu/

Leiðbeinendur: Bjarki Gunnar Halldórsson, Karitast Möller, Guja Dögg Hauksdóttir og Helena Björgvinsdóttir taken in Listaháskóli Íslands by @iua_architecture
6
4 months ago
Download
VIÐ, HRAUN
Laufey Sólmundardóttir

Hraunið er dularfullt. Það er kröftugt, fallegt, spennandi og býr yfir afli sem dregur mann að sér. Á sama tíma er tilvera þess áleitin áminning um eyðileggingu og sár. Það er yfirþyrmandi en magnþrungið. Ég velti fyrir mér samtali okkar við hraunið og náttúruna, hvernig nálgumst við landslag í samhengi þess sem áður var og þess sem nú er. 
Ég leita svara í anda staðarins.  Ég sæki í sögu og staðhætti en líka í formfræði þess sem er. Út frá þessum þemum byrja rými að taka á sig mynd og form fara að mynda rými.

/

By, lava 

The lava field is mystical. It is powerful, beautiful, and exciting; there is something about it that draws you towards it. Yet, its very existence  is a poignant reminder of destruction and loss. It is overwhelming and dangerous.
I contemplate about this dialogue between ourselves and the lava, and the surrounding nature. How do we approach a landscape, in relation to what was, and what has become. I seek answers in the spirit of the place. I seek answers in its history and identity, but also in its abstract morphology. From these fragments, spaces begin to take shape, and shapes begin to define spaces.

/Verkefni til BArch gráðu/

Leiðbeinendur: Bjarki Gunnar Halldórsson, Karitast Möller, Guja Dögg Hauksdóttir og Helena Björgvinsdóttir taken in Listaháskóli Íslands by @iua_architecture
3
4 months ago
Download
STÓRHÖFÐI -
Júlía Guðmundsdóttir Gähwiller 

Stórbrotin náttúra Íslands hefur verið landsmönnum hörð og miskunnarlaus í aldanna rás. Á milli náttúru og mannkyns spilaðist eins konar taflleikur. Náttúruöflin höfðu lengi yfirhöndina, uns skilningur manna á umhverfi sínu óx og þeir fóru að stýra örlögum sínum af meiri festu. Vitavarðarhúsið á Stórhöfða í Vestmannaeyjum, reist við aldarmót 20. aldar, markar upphaf þessara náttúrurannsókna á Íslandi. Verkefni þetta felur í sér enduruppbyggingu hins sögulega Stórhöfðavita sem verbúð fyrir rannsakendur, með aðstöðu til veður-, fugla- og jarðfræðirannsókna. Fléttast þar saman rótgróin fortíð og upprunaleg mynd vitans við nútímalega viðbyggingu, og skapast þannig heildstætt búsetu- og vinnuumhverfi, í samhljómi við sögulega arfleifð staðarins. 

/

Iceland’s powerful and harsh environment has compelled its inhabitants to a constant negotiation with nature for survival. A quiet contest of endurance and adaptation where knowledge of nature became a tool for improving living conditions. In the early 1800s, intentional observations of Iceland’s natural environment began to emerge, with the Stórhöfði lighthouse serving as one of the initial observation sites, perched on the southern edge of the Westman Islands. The project centers on transforming the derelict lighthouse into a living research station, with facilities for meteorological, ornithological, and geological studies. The original structure is preserved and connected to a contemporary extension, creating a cohesive living and working environment with harmony between man and nature as well as the past and the present 

/Verkefni til BArch gráðu/

Leiðbeinendur: Bjarki Gunnar Halldórsson, Karitast Möller, Guja Dögg Hauksdóttir og Helena Björgvinsdóttir taken in Listaháskóli Íslands by @iua_architecture
2
4 months ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up