Instagram story viewer> @iua_visual_communication> Posts
1.3K
followers
163
following
Visual communication at
Iceland University of the Arts
@iceland_university_of_the_arts
Nemendastýrður reikningur / Student account
POSTS STORIES REELS TAGGED
Dafi Kühne — Poster Cult!

Félag íslenskra teiknara og Listaháskóli Íslands bjóða á opinn fyrirlestur grafíska hönnuðarins Dafi Kühne, miðvikudaginn 30. september í Bíó Paradís. Fyrirlesturinn hefst kl. 17:30. 

Dafi Kühne er grafískur hönnuður og prentari. Hann lærði grafíska hönnun við Listaháskólann í Zürich (ZHdK) og lauk rannsóknarmiðuðu meistaranámi í leturhönnun (Typeface Design) við University of Reading í Bretlandi. Dafi hefur unnið við eigin hönnunarstofu, babyinktwice.ch frá árinu 2009. Dafi vinnur jafnt með analog og stafrænar aðferðir við gerð plakata sinna sem hann vinnur fyrir menningartengd verkefni og auglýsingar. Hann vinnur eftir einni meginreglu: „Ekkert stafrænt PDF-skjal fer frá vinnustofunni sem lokaafurð.“ Öll veggspjöld Dafi Kühne eru prentuð með letterpress prentaðferðum.
Fyrsta bók Dafi Kühne, «True Print», kom út frá Lars Müller Publishers árið 2016 og bókin «Poster Cult!», kom út árið 2024. Hann er stundakennari við háskóla í Sviss, Evrópu og Bandaríkjunum en Dafi kennir einnig eigin vinnusmiðju: Typographic Printing Program (www.typographic-printing-program.com) í Sviss, alþjóðlegu tveggja vikna námskeiði þar sem nemendur kynnast nýjum aðferðum í leturfræði og letterpress prentun.

Frá árinu 2018 hefur Kühne gefið út vefmyndbönd undir heitinu „The Dafi Kühne Printing Show™“. Árið 2021 hlaut serían bæði Swiss Design Award og verðlaun fráTokyo TDC. Plaköt eftir Dafi eru varðveitt í söfnum í Sviss, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Verk hans hafa hlotið alþjóðleg verðlaun og verið sýnd á sýningum víða um heim. Kühne er meðlimur í Alliance Graphique Internationale (AGI). by @iua_visual_communication
0
24 days ago
Download
InnSæi er innri röddin þín. Hvíslandi straumur undirmeðvitundarinnar sem talar þegar
hugurinn þagnar. Leið mannsins til að sjá inn í sjálfan sig, sjóinn sem býr innra með
okkur.

Á yfirborðinu rísa öldur. Þær hreyfast stöðugt, mótaðar af veðri og vindum umhverfisins.
Þegar við erum ótengd sjálfum okkur lifum við þar, líkt og stjórnlaus rekaviður sem gefur
sig á vald öldugangi yfirborðsins. Ef þú leyfir þér að sökkva dýpra, fjarlægist hávaðinn og við tekur kyrrð. Því dýpra sem þú
ferð inn á við því skýrari verður röddin. Þegar við hlustum á hana ná öldurnar aftur
jafnvægi.

InnSæið gefur okkur sterkt innra leiðarljós sem gerir okkur kleift að sigla okkar eigin leið
í lífsins ólgusjó. Án innra leiðarljóss kippa ytri öfl undan okkur fótunum og við fljótum
sofandi að feigðarósi.

——————————————————-

InnSæi is your inner voice. A whispering stream of unconsciousness that speaks to you
when the mind quiets. Our way to see inside ourselves, the see within us.

On the surface, waves rise. Constantly moving and transforming, shaped by weather and
winds. The very space we find ourselves in, when disconnected from within. Like a worn
piece of wood drifting on the ocean’s skin, carried by currents it did not choose, belongs
nowhere and to everything at once. If you allow yourself to sink deeper, noise will make way for peace and quiet. The deeper
you go inside yourself, the clearer your voice becomes. When we listen to it, the ocean
waves find balance again.

InnSæi gives us a strong inner compass that enables us to navigate our own course
through the turbulent seas of life. Without this inner guidance, external forces sweep us off
our feet, and we drift unconsciously toward our own undoing. by @iua_visual_communication
4
5 months ago
Download
Hula tímans er bók þar sem hvert tákn táknar 5.300 ár, alla lengd mannlegrar siðmenningar. Jörðin er 4,54 milljarða ára gömul. Bókin inniheldur 856.604 tákn.
Verkið fjallar um skölun, um að setja manninn í samhengi við tíma jarðar. Táknin eru hluti af sérhönnuðu leturkerfi sem skiptist eftir jarðfræðilegum tímabilum. Þau breytast hægt í gegnum bókina og verða skýrari eftir því sem við nálgumst nútíma, því við vitum meira um það sem er okkur næst í tíma.
Verkið er tilraun til að gera þennan mælikvarða líkamlegan. Að halda á honum. Að finna fyrir því hvað við erum lítil og finna í því frið.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Curtains of Time is a book in which each symbol represents 5,300 years, the entire span of human civilization. Earth is 4.54 billion years old. The book contains 856,604 symbols.
The work is about scale, placing humanity in the context of geological time. The symbols are part of a custom type system divided by geological eons. They slowly transform throughout the book, becoming more visible as we approach the present, because we know more about what is closest to us in time.
The work is an attempt to make this scale physical. To hold it in your hands. To feel how small we are and to find peace in that. by @iua_visual_communication
3
5 months ago
Download
ResPress er stafrænt verkfæri sem skoðar samband upplausnar, læsileika og stafrænnar leturfræði. Verkefnið spyr hversu miklar upplýsingar bókstafur þarf til að halda merkingu sinni, og hvað gerist þegar hann byrjar að brotna niður. Með því að lækka upplausn og einfalda form geta notendur ýtt letri að mörkum læsileika, þar sem stafir verða að mynstrum, táknum eða nýjum formum. Útkoman er ekki aðeins sjónræn tilraun, heldur letur sem hægt er að hlaða niður og nota áfram. ResPress notar tæknilegar hindranir sem skapandi aðferð til að endurhugsa hvernig við lesum stafrænt letur. Hægt er að nálgast síðunna á Respress.is

—

ResPress is a digital tool that explores the relationship between resolution, legibility, and typography in a digital world. At the heart of the project rests the question: how much information does a letter need to keep its original meaning, and what happens when it begins to break down? By lowering resolution and simplifying form, users test the limits of types legibility, where letters become patterns, symbols, or new visual forms. The result is not only a visual experiment, but a typeface that can be exported and used further. ResPress uses technical limitations as a creative method for rethinking how we read digital type. You can acsess the website at Respress.is by @iua_visual_communication
0
5 months ago
Download
Rafskinna var nýstárleg rafknúin „bók“ sem birtist árlega í verslunarglugga í miðbæ Reykjavíkur um miðja tuttugustu öldina, þar sem auglýsingar flettust sjálfkrafa fyrir augum almennings. Gunnar Bachmann var hvatamaður Rafskinnu, sem sýndi handteiknuð auglýsingaplaköt eftir Tryggva Magnússon og Jón Kristinsson, með auglýsingum fjölbreyttra íslenskra fyrirtækja. Verkið endurvekur þessa sjónrænu sögu með því að safna plakötunum saman í bók og varpa ljósi á Rafskinnu sem mikilvægan þátt í íslenskri auglýsingamenningu. Með því veitir bókin innsýn í handverk og sjónræna tjáningu auglýsinganna og varðveitir minningu frumkvöðulsins og listamannanna á nýjan hátt.
––––––
​​Rafskinna was an innovative mechanical “book” that appeared annually in a shop window in downtown Reykjavík in the mid-twentieth century, where advertisements flipped automatically before the eyes of the public. Initiated by Gunnar Bachmann, Rafskinna featured hand-drawn advertising posters by Tryggvi Magnússon and Jón Kristinsson, promoting a wide range of Icelandic companies. This work revisits that visual history by collecting the posters into a book and highlighting Rafskinna as an important part of Icelandic advertising culture. In doing so, the book offers insight into the craftsmanship and visual expression of the advertisements, while preserving the legacy of the initiator and the artists in a new way. 
Seinasti dagurinn í dag 17. maí til þess að skoða sýninguna í Listasafni Reykjavíkur🪷🪷🪷

-Rannveig Þóra Karlsdóttir by @iua_visual_communication
24
5 months ago
Download
Markmið þessarar bókar er að rannsaka dúkkuna og margvíslegar birtingarmyndir hennar í sögu og menningu. Farið verður stuttlega yfir sögu dúkkna og það hvernig dúkkuleikur hefur áhrif á þann sem leikur sér með dúkkuna. Til dæmis gerir dúkkuleikur börnum kleift að öðlast skarpari tilfinningagreind þar sem þau læra að sjá sig í öðrum með því að leika sér með dúkkunna. Dúkkan er einnig skoðuð sem táknmynd í tengslum við feminískar kenningar og hlutgervingu kvenna. Við hönnun verksins vildi ég tvinna saman framsetningu rannsóknar á leikfangi eins og það væri skúlptúr eða listaverk og því barnslega frelsi og forvitni sem fylgir því að leika sér með dúkkur.    

Leyfilegt er að klippa og líma á bleiku síðurnar í bókinni. 

Verkið er til sýnis í Listasafni Reykjavíkur 9. -17. maí. Hvet alla til þess að mæta núna um helgina!!

---‐------
This goal of this book is to research dolls and the different manifestations of them throughout history and culture. It goes briefly over the history of dolls and how the doll can affect those that play with them. For instance, doll games allow children to develop sharper emotional intelligence by learning to empathize with others by playing with the doll. The doll is also looked at though the lance of feminist theory and the objectification of women. In the works design I wanted to weave together my findings of researching a toy like it was a sculpture or a piece of art and the childish freedom and curiosity that comes with playing with dolls.  

It is allowed to cut and glue on the pink pages in the book.  

I encourage those who can to come check out at the Reykjavík Art Museum this weekend!!! The last day to see the exhibition is this sunday!! by @iua_visual_communication
15
5 months ago
Download
Ég hannaði kerfi sem kannar mögulega framtíð auglýsinga, þar sem áhorfandinn verður sjálfur hluti af sérsniðinni auglýsingu. Fjögur tauganet greina áhorfandann og velja bestu auglýsinguna úr hópi 75 auglýsinga sem dreifast yfir 10 ólík fyrirtæki.
- Gunnar Karl Thoroddsen -
-
Hvernig munu auglýsingar framtíðarinnar líta út? Á tímum sérsniðinna auglýsinga og vaxandi stafræns eftirlits verða mörkin milli einkalífs og markaðsefnis sífellt óskýrari. Þetta verkefni rannsakar heim ofursérsniðinna auglýsinga þar sem þú ert ekki lengur aðeins áhorfandi, heldur aðalpersóna eigin markaðssetningar. Útlit þitt er greint og auglýsing valin út frá því, þú birtist síðan í auglýsingunni. Tæknin brúar bilið milli löngunar og veruleika. Í stað þess að ímynda þér hvernig varan gæti bætt líf þitt, sérðu sjálfan þig í sjónrænum heimi hennar. Þú ert auglýsingin.
-
What will the advertisements of the future look like? In an era of personalised advertising and growing digital surveillance, the boundaries between private life and commercial content are becoming increasingly blurred. This project explores a world of hyper-personalised advertising where you are no longer merely a spectator, but the main character of your own marketing. Your appearance is analysed and an advertisement selected based on it, you then appear in the ad itself. This technology bridges the gap between desire and reality. Instead of imagining how a product might improve your life, you see yourself in its visual world. You are the advertisement. taken in Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum by @iua_visual_communication
5
5 months ago
Download
Þú veist ég heiti Jonna Jónborg Sigurðardóttir er bókverk sem byggir á verkum móður minnar, listakonunnar Jonnu Jónborgar Sigurðardóttur. Markmiðið var að safna og skrásetja verk hennar en í ferlinu þróaðist bókverkið í persónulegt samtal. Verk hennar eru unnin út frá tilfinningum, áföllum og lífsreynslu, sett hér fram í skipulögðu grafísku kerfi þar sem texti og mynd mætast. Samhliða birtist mín eigin rödd sem endurspeglar samband okkar og mínar upplifanir. Verkið fjallar um tengsl móður og dóttur, skilning, fjarlægð og mína sátt um að list er mömmu nauðsynleg til úrvinnslu áfalla. Mikilvægasta spurningin var því: Getur listræn sköpun læknað okkur?

You know my name is Jonna Jónborg Sigurðardóttir is an artbook based on the works of my mother, the artist Jonna Jónborgar Sigurðardóttir. The goal was to collect and document her work, but in the process the book developed into a personal conversation. Her works are based on emotions, traumas and life experiences, presented here in a structured graphic system where text and image meet. At the same time, my own voice appears, reflecting our relationship and my experiences. The work deals with the relationship between mother and daughter, understanding, distance and my acceptance that art is necessary for a mother to process trauma. The most important question was therefore: Can artistic creation heal us? taken in Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum by @iua_visual_communication
12
5 months ago
Download
Tribal Tapestry

Þetta verkefni hverfist um sjónrænt kerfi sem sækir innblástur í Kalinga-húðflúrhefð Filippseyja. Kerfið gerir grein fyrir sjálfsmynd einstaklinga í gegnum mynstur sem tákna þjóðfélagsstöðu og persónulega sögu í gegnum ýmis hlutverk: þjóðerni, afkomendur, systkini, maka, foreldra og forfeður. Hver þáttur hefur sín eigin tákn sem eru saumuð út og að lokum ofin saman til að búa til refil fjölskyldunnar eða ættbálksins. Refillinn táknar þannig ættbogann og sjálfsmynd sem er sífellt í mótun.

___

Tribal Tapestry

This project revolves around a visual system that I developed, inspired by the Kalinga tattoos from the Philippines. This system helps portray identity through patterns, representing status, personal history, and stages of family based social roles; Ethnicity, descendant, Older sibling, Spouse, Parent and grandparent. Each stage has its own design for a symbolic pattern. These designs are then embroidered into strips of fabric which are then woven together to create a tribal tapestry. The tapestry represents the identity of those who are included in it which is my family and it also presents identity being an evolving process.

Feel free to check all other artworks at the Reykjavík Art Museum, Hafnarhús. Open from May 9th-17th,

___

John Berniel G. Quirona by @iua_visual_communication
5
5 months ago
Download
766 Tré

Nokkur tré gróðursett af fjölskyldu minni standa á jörð Reynifells á Rangárvöllum, norðvestan við fjallið Þríhyrning og Fiská. Norðan við landið rennur Eystri-Rangá, frekar bratt er niður að henni og klettótt er á köflum. Hinum megin við er uppblásið hraun, skreytt nokkrum lúpínum og nýgróðursettum birkitrjám. Jarðvegurinn þar er mjög þurr, blandaður vikri og sandi, og í fjarska glittir í Heklu. Þvert yfir landið liggur dæld og neðst í henni er skjól þar sem engin tré hafa verið sett niður. Síðan árið 1993 hafa þúsundir trjáa verið gróðursett í Reynifelli og í verkinu er 766 þeirra skrásett. 
—–—
Several trees are planted by my family on the land of Reynifell in Rangárvellir, northwest of the mountain Þríhyrningur and the river Fiská. To the north of the land the river Eystri-Rangá flows. Across it is wind-eroded lava, sparsely covered by lupines and birch saplings, the soil there is very dry, mixed with sand and pumice, and further to the north the volcano Hekla can be seen. A dip runs across the land where no trees have been planted and at the bottom the wind is unusually calm. Since 1993, thousands of trees have been planted in Reynifell, and 766 of them are recorded in this project.

Hægt er að skoða öll 766 tré á útskriftarsýningunni í Listasafni Reykjavíkur til 17. maí.

- Vilborg María Arnard. Kuzminova by @iua_visual_communication
16
5 months ago
Download
Milli tveggja heima

Ég ólst upp í kringum kólumbískar Wayuu töskur. Seinna á ævinni uppgötvaði ég íslensk mynstur og tákn. Wayuu mynstrin, kölluð kanaas, og hefðbundin íslensk skrauttákn eru sjónræn tungumál sem sækja í náttúru, sögu og hversdaginn. Í því ljósi fór ég að hugsa um handverkshefðir sem leið til að varðveita menningu – og minningar. Með prenttækni á borð við silkiþrykk, dúkristu og tréristu fæ ég þessar tvær sjónrænu hefðir til að ræðast við og skapa nýjar myndir sem endurspegla reynslu mína af því að búa milli Kolumbíu og Íslands. Endurtekning og ófullkomnleiki hefðbundinnar prenttækni verða að leiðum til að kanna menningarleg tengsl, fólksflutninga, sjálfsmynd og hvað það þýðir að tilheyra.

 
Between Two Cultures

This project explores questions of belonging through analogue printmaking and craft traditions. Growing up around Colombian Wayuu bags and later discovering Icelandic textile patterns led me to reflect on how handmade practices preserve cultural identity and memory. Wayuu patterns, known as Kanaas, and traditional Icelandic ornaments both function as visual languages rooted in nature, history, and everyday life. Through printmaking techniques such as serigraphy, linocut, and woodcut, I bring these traditions into dialogue, developing new compositions that reflect my experience of living between Colombia and Iceland. The project embraces process, repetition, and imperfection as ways of exploring cultural connection, migration, and personal identity through making. 

- Laura Alejandra Salinas Moreno by @iua_visual_communication
18
5 months ago
Download
Stafrófið er svo rótgróið í lífi okkar að við stöldrum sjaldan við til að hugleiða hönnun þess eða uppruna. Íslenska tungumálið hefur að mestu leyti haldist óbreytt gegnum tímann og ritmálið okkar hefur sérstaklega
sterkt menningarlegt og sögulegt gildi; segja má að það sé grunnurinn að sjálfstæði þjóðarinnar. Séríslenskir bókstafir hafa ríkt tákngildi í sjálfsmynd íslendinga; þeir eru nauðsynlegir til að viðhalda hljóðkerfi íslenskunnar og vernda blæbrigði tungumálsins. Þetta vekur upp mikilvæga spurningu: Ættu Íslendingar að íhuga að hanna og innleiða nýja sérstafi til að ná enn betur utan um blæbrigði og hljóm tungunnar?

Lokaverkefnið mitt er hönnun á nýjum séríslenskum bókstöfum sem eru sett í bókverkið hönnun og innleiðing séríslenskra bókstafa. Þessi bók inniheldur einnig texta sem varpar ljósi á umfangsmikið rannsóknarferlið mitt og setur nýju tillögurnar í samhengi.

Hægt er að skoða og lesa bókina í Listasafni Reykjavíkur 9.-17. maí, hlakka til að sjá ykkur !

———

The alphabet is so deeply rooted in our lives that we seldom pause to contemplate its design or origins. The Icelandic language has remained largely unchanged for centuries and our orthography holds particularly
strong cultural and historical value; it could be said to be the very foundation of the nation’s independence. Unique Icelandic letters carry significant symbolic value for the Icelandic identity; they are essential for
maintaining the language's phonetics and protect the nuances of the Icelandic language. This raises an important question: Should Icelanders consider designing and implementing new unique letters to better capture the nuances and resonance of the language?

For my final project, I designed new unique Icelandic letters and present them in a book titled Design and Implementation of Unique Icelandic Letters. This book also includes text that sheds light on my extensive research process and puts the new proposals into context.

This work can be seen at the Reykjavík Art Museum from May 9th to 17th., excited to see you all !

———

Ronja Þuríður Kristleifsdóttir by @iua_visual_communication
11
5 months ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up