Instagram story viewer> @mariarut> Posts
8.1K
followers
1820
following
💭Pælum í pólitík
🎙 Raunveruleikinn
🤝🏼@vidreisn
🏳️‍🌈 @hinseginleikinn
💍 @ingileiff
POSTS STORIES REELS TAGGED
Ég elska frelsi 🤝 by @mariarut
4
5 days ago
Download
Hefur minnihlutinn ekki athyglisspönn fyrir neitt nema Evrópusambandið? 

Minnihlutinn vænir ríkisstjórnina stöðugt um að hafa bara athygli í eitt mál í einu. Í dag upplýsti ég þingheim um þá ótrúlegu staðreynd að það er hægt að gera fleiri en einn hlut í einu.

Það hefur til að mynda verið í gangi einhvers konar þráhyggja hjá minnihlutanum um að ríkisstjórnin hafi BARA getað einblínt á Evrópusambandið síðustu mánuði og EKKERT annað hafi komst á dagskrá. Það er sem sagt í þeirra hliðarveruleika. Í okkar raunveruleika þá kláruðum við samgönguáætlun, settum á fót innviðafélag, kláruðum tvo rammpakka í rammaáætlun, hallalaus fjárlög, settum heildarlög um vindorku og jú kláruðum sannarlega líka þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við ESB. En þarna gátum við gert bæði og. 
Það er líka oft sagt að við séum svo upptekin af Evrópu að við getum ekki horft í aðrar áttir og átt samtöl við aðrar vinaþjóðir. 

Á sama degi og Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom í opinbera heimsókn til Íslands. þá kepptust þingmenn minnihlutans við að koma hér upp í þessa pontu í umræðu um Bókun 35 og væna ríkisstjórnina um að vera með Evrópuþráhyggju. Hvað með efnahagslífið og kjarasamninga? Sögðu þeir. 
Jú, á sama tíma og þingmenn tóku 10 klukkutíma í að ræða Bókun 35 á þingi sátu forsætisráðherra og fjármálaráðherra önnum kafnir við að leysa þann hnút sem blasti við í kjaradeilum vinnumarkaðarins.

Á meðan minnihlutinn hefur varið sínum tíma í einhverjum hliðarveruleika þar sem þráhyggja fyrir Evrópusambandinu virðist ráða ríkjum höfum við verið í raunheimum að ganga í málin 🤝 by @mariarut
5
9 days ago
Download
Vikan sem leið 👀

📸 @helgiomarsson by @mariarut
5
10 days ago
Download
Aðeins áfram um Cornell (5)7 málið: Er baráttan gegn kynbundnu ofbeldi einkamál kvenna? 🤔

Ræddi við vin minn @grimur_grimsson um það hvers vegna karlmenn taka oft ekki jafn virkan þátt í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Og hvað getum við gert til að breyta því? 🤷‍♀️ by @mariarut
11
11 days ago
Download
TW:
Það hafa vafalaust margir fylgst með Cornell 5(7) málinu á samfélagsmiðlum síðustu daga. Málið er birtingarmynd af rótgróinni meinsemd í mennsku samfélagi. Um þöggun, gerendameðvirkni og vanmátt samfélagsins þegar það kemur að því að uppræta kynbundið ofbeldi. 

@vidreisn náði í gegn mikilvægri breytingu á hegningarlögum árið 2018 sem breytti skilgreiningunni á nauðgun. Sönnunarbyrðinni var snúið við og samþykki sett í forgrunn. Það er enn í dag eitt mikilvægasta framlag Viðreisnar til íslensks samfélags. Sem ég er stolt af. 

Min skilaboð eru samt þessi: ofbeldi þrífst í þögninni. Þögnin er besti vinur gerandans. Ekki standa hjá. Upprætum ofbeldi og skilum skömminni. Alltaf 🫶

Hér eru mín tvö sent um þetta og fleira til. by @mariarut
11
13 days ago
Download
🤎🍂 by @mariarut
4
13 days ago
Download
Októberfest Viðreisnar var 🔥 by @mariarut
0
15 days ago
Download
🇩🇰 taken in Nyhavn, København, Denmark by @mariarut
1
19 days ago
Download
Köben 🇩🇰 taken in Strøget by @mariarut
6
21 days ago
Download
Þessu erum við að breyta! 

🔸Vegakerfið hefur verið láta grotna niður, þessu erum við að breyta. Fjármagn til viðhalds vegakerfisins hefur verið hækkað um rúma 7 milljarða. Úr 13 milljörðum í tíð síðustu ríkissstjórnar í 17,6 sem mun svo hækka upp í 20 milljarða á kjörtímabilinu.
🔸Samþykktum samgönguáætlun, sem var ekki gert í tíð síðustu ríkisstjórnar.
🔸Það hefur ekkert verið borað síðan 2020, þessu erum við að breyta.
🔸Ekki hefur verið farið í nægilega margar stórar samgönguframkvæmdir, þessu erum við að breyta. Við stofnuðum innviðafélag sem er grundvöllur fyrir stórsókn í samgönguframkvæmdum.

Við erum að fjárfesta í innviðum landsins og á sama tíma erum við að spara til að hætta að reka ríkið á yfirdrætti 🧡 by @mariarut
0
23 days ago
Download
Við ætlum að fjárfesta í innviðum og grunnkerfunum en hætta um leið að reka ríkissjóð á yfirdrætti. Þau sem reka heimili þekkja það vel að slíkt er ekki sjálfbært til lengri tíma. Og skuldin kemur. Seinna. 

Hallalaus fjárlög skipta því miklu máli. Því mesta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið er lægri verðbólga og lægri vextir. Og stöðugleiki og fyrirsjáanleiki til lengri tíma. 

Þar ætlar ríkið, eins og skynsamlega rekið heimili, að leggja sitt af mörkum. taken in Alþingi by @mariarut
0
24 days ago
Download
Hvað sjáið þið á ykkar algórythma? 👀 takk fyrir mig @ungmennafelag.islands - alltaf svo gott að koma 🫶 taken in Hrútafjörður by @mariarut
2
a month ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up