Instagram story viewer> @vidreisn> Post
3 days ago
Þingflokkur Viðreisnar hefur kosið Pawel Bartoszek sem formann þingflokksins. 🧡

Pawel situr á þingi fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann hefur verið formaður utanríkismálanefndar undanfarin tvö ár og situr í efnahags- og viðskiptanefnd, þingmannanefnd Íslands og ESB og Íslandsdeild þings ÖSE. Hann var fyrst kjörinn þingmaður Viðreisnar 2016 og svo aftur 2024.

„Ég er gríðarlega þakklátur fyrir að fá þetta tækifæri og fyrir það traust sem þingflokkurinn sýnir mér. Fram undan eru mikilvæg verkefni á Alþingi. Við erum til að mynda að ljúka afgreiðslu hallalausra fjárlaga sem stuðla að minni verðbólgu og lægri vöxtum, en það er eitt mikilvægasta verkefni þessarar ríkisstjórnar. Ég hlakka til að vinna að því að frjálslynd rödd Viðreisnar heyrist enn sterkar innan þings sem utan.” – segir Pawel Bartoszek.

Á sama fundi var María Rut Kristinsdóttir kjörin varaformaður þingflokksins og Grímur Grímsson ritari hans. 🤝
0
Posted On: October 13th 2026, 01:56 pm
Tagged Users:

More posts

back to up