Instagram story viewer> @vidreisn> Posts
4.5K
followers
319
following
Viðreisn er frjálslyndur flokkur sem berst fyrir réttlátu samfélagi, stöðugu efnahagslífi og fjölbreyttum tækifærum.
POSTS STORIES REELS TAGGED
Sólin skín og þingflokkur Viðreisnar er klár í þingveturinn framundan 🧡🇮🇸 taken in Alþingi by @vidreisn
3
a month ago
Download
Þetta var góður dagur!🧡 taken in Bessastaðir by @vidreisn
6
2 years ago
Download
Bjartir tímar framundan með nýrri ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. by @vidreisn
4
2 years ago
Download
Þingmenn Viðreisnar, Pawel Bartoszek, Grímur Grímsson og Valdimar Breiðfjörð Birgisson, heimsóttu RVK Studios ásamt Þorvaldi Davíð, varaborgarfulltrúa okkar. Baltasar Kormákur tók vel á móti hópnum og ræddi við þau um tækifæri og áskoranir í kvikmyndaiðnaðinum á Íslandi. 🎬

Það var virkilega gaman að sjá þá uppbyggingu í Gufunesi sem hefur gjörbreytt aðstöðu til kvikmyndagerðar á Íslandi. Við þökkum RVK Studios skemmtilega og fræðandi heimsókn. 🧡 taken in Rvk Studios by @vidreisn
0
19 hours ago
Download
Öruggara Ísland 🇮🇸

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, hefur boðað breytingar til að efla lögregluna og sækja fast að glæpahópum sem starfa hér á landi og þvert á landamæri. Mikilvægur liður í þeim breytingum er að sameina níu lögregluembætta í þrjú öflugri embætti sem ráða betur við umfangsmeiri skyldur og verkefni.

Til þess að lögreglan nái árangri þarf að efla hana. Svo einfalt er það. 🤝 taken in Reykjavík, Iceland by @vidreisn
2
a day ago
Download
Það hefur verið sannkallaður heiður að fá að stýra utanríkismálanefnd síðastliðin tæp 2 ár. Ég hef átt góð samskipti við alla nefndarmenn í gegnum viðburðarríkar stundir á alþjóðasviðinu. Við tókum þátt í að móta nýja stefnu í varnar- og öryggismálum sem samþykkt var einróma af Alþingi. Síðan var auðvitað þjóðaratvkæðagreiðslan um ESB fyrirferðarmikil í störfum nefndarinnar á þessu ári, og sú atkvæðagreiðsla auðvitað söguleg, þótt sum okkar hefðu vissulega viljað skrifa þá sögu á annan hátt. 

En allt tekur enda. Ég tilkynnti í dag á fundi utanríkismálanefndar að ég hafi stýrt mínum síðasta fundi í nefndinni að sinni. Ég einbeiti mér því nú að formennsku í þingflokki Viðreisnar en Grímur Grímsson kemur í minn stað í utanríkismálum. Treysti því vel að hans reynsla muni nýtast þjóðinni á þessum miklum umbrotatímum. Takk fyrir mig! by @vidreisn
4
2 days ago
Download
Eiríkur Björn Björgvinsson og Sandra Sigurðardóttir tóku þátt í sérstökum umræðum um notkun tóbaks og nikótínvara meðal barna og ungmenna. Mikilvægt að rödd frelsis og ábyrgðar heyrist í þessari umræðu. 🤝

„Bann eða takmarkanir umfram það sem nú er á sölu leysa að mínu mati og okkar í Viðreisn ekki vandann. Við þurfum markvissa fræðslu, opinská samtöl og foreldra, kennara, þjálfara og aðra fullorðna sem sýna gott fordæmi."

„Stefna Viðreisnar er skýr. Við viljum skynsamlegt og fyrirsjáanlegt regluverk en okkur hugnast ekki að beita íþyngjandi boðum og bönnum. Reynsla og rannsóknir sýna okkur skýrt að bann eitt og sér dregur sjaldnast úr líkum á neyslu." taken in Alþingi by @vidreisn
0
3 days ago
Download
Þingflokkur Viðreisnar hefur kosið Pawel Bartoszek sem formann þingflokksins. 🧡

Pawel situr á þingi fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann hefur verið formaður utanríkismálanefndar undanfarin tvö ár og situr í efnahags- og viðskiptanefnd, þingmannanefnd Íslands og ESB og Íslandsdeild þings ÖSE. Hann var fyrst kjörinn þingmaður Viðreisnar 2016 og svo aftur 2024.

„Ég er gríðarlega þakklátur fyrir að fá þetta tækifæri og fyrir það traust sem þingflokkurinn sýnir mér. Fram undan eru mikilvæg verkefni á Alþingi. Við erum til að mynda að ljúka afgreiðslu hallalausra fjárlaga sem stuðla að minni verðbólgu og lægri vöxtum, en það er eitt mikilvægasta verkefni þessarar ríkisstjórnar. Ég hlakka til að vinna að því að frjálslynd rödd Viðreisnar heyrist enn sterkar innan þings sem utan.” – segir Pawel Bartoszek.

Á sama fundi var María Rut Kristinsdóttir kjörin varaformaður þingflokksins og Grímur Grímsson ritari hans. 🤝 by @vidreisn
0
3 days ago
Download
Þingflokkur, ráðherrar og starfsfólk Viðreisnar komu saman á dögunum til vinnudags í fallegu umhverfi í Ölfusi. Þar fórum við yfir það sem hefur áunnist og mikilvægustu verkefnin framundan. 🧡

Eitt brýnasta verkefnið er að skapa skilyrði fyrir minni verðbólgu og lægri vöxtum. Hallalaus fjárlög eru lykilskref á þeirri leið, enda skiptir lægri vaxtabyrði miklu fyrir heimili og fyrirtæki um land allt. 🇮🇸 by @vidreisn
0
3 days ago
Download
Einföldum aðgengi að lausasölulyfjum á Íslandi. 🤝

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, hefur ásamt fleiri þingmönnum flokksins lagt fram frumvarp sem myndi heimila sölu lausasölulyfja í almennum verslunum. 

Markmiðið er að bæta aðgengi og auka samkeppni sem getur stuðlað að lægra lyfjaverði. Með breytingunni yrði hægt að kaupa til dæmis verkjalyf og ofnæmislyf í matvöruverslunum og á bensínstöðvum. Það gæti sparað fólki sérstaka ferð í apótek og auðveldað því að nálgast lyf þegar apótekið er lokað. 

„Lillehammer er nú ekki stór bær og þar var ekkert apótek opið en ég komst í Paratabs og Íbúfen á bensínstöð. Ef Norðmenn geta haft þetta svona held ég að við ættum að geta gert það líka,“ – Ingvar Þóroddsson þingmaður

Viðreisn leggur áherslu á að einfalda regluverk og auka samkeppni í þágu neytenda, við höfum nú þegar náð miklum árangri í þeim efnum og þetta frumvarp er annað skref í þá átt. 🧡 by @vidreisn
0
4 days ago
Download
Stöðugleiki á vinnumarkaði og hallalaus fjárlög 👏

Viðreisn hefur frá upphafi lagt áherslu á að ná hér stöðugleika til framtíðar. Þar gegnir lykilhlutverki að sátt ríki á vinnumarkaði og að jafnvægi sé á ríkisfjármálunum. 

Meðal aðgerða sem gripið verður til:

🔸 Einföldun regluverks fyrir atvinnulífið.
🔸 Dregið verður úr vægi verðtryggingar og sjálfvirkra verðbreytinga.
🔸 Stutt við heilbrigða samkeppni og réttindi launafólks.
🔸 2,5% þak á krónutöluhækkanir.

Með aðgerðum ríkisstjórnar Viðreisnar, Samfylkingar og Flokk fólksins er verið að styðja við stöðugleika á vinnumarkaði án þess að hvika frá markmiðum um hallalaus fjárlög. Þessar aðgerðir kynda ekki undir verðbólgu, þvert á nálgun fyrri ríkisstjórna. 

Stöðugleiki er forsenda varanlegra kjarabóta. 🧡 by @vidreisn
1
8 days ago
Download
Hefur minnihlutinn ekki athyglisspönn fyrir neitt nema Evrópusambandið? 

Minnihlutinn vænir ríkisstjórnina stöðugt um að hafa bara athygli í eitt mál í einu. Í dag upplýsti ég þingheim um þá ótrúlegu staðreynd að það er hægt að gera fleiri en einn hlut í einu.

Það hefur til að mynda verið í gangi einhvers konar þráhyggja hjá minnihlutanum um að ríkisstjórnin hafi BARA getað einblínt á Evrópusambandið síðustu mánuði og EKKERT annað hafi komst á dagskrá. Það er sem sagt í þeirra hliðarveruleika. Í okkar raunveruleika þá kláruðum við samgönguáætlun, settum á fót innviðafélag, kláruðum tvo rammpakka í rammaáætlun, hallalaus fjárlög, settum heildarlög um vindorku og jú kláruðum sannarlega líka þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við ESB. En þarna gátum við gert bæði og. 
Það er líka oft sagt að við séum svo upptekin af Evrópu að við getum ekki horft í aðrar áttir og átt samtöl við aðrar vinaþjóðir. 

Á sama degi og Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom í opinbera heimsókn til Íslands. þá kepptust þingmenn minnihlutans við að koma hér upp í þessa pontu í umræðu um Bókun 35 og væna ríkisstjórnina um að vera með Evrópuþráhyggju. Hvað með efnahagslífið og kjarasamninga? Sögðu þeir. 
Jú, á sama tíma og þingmenn tóku 10 klukkutíma í að ræða Bókun 35 á þingi sátu forsætisráðherra og fjármálaráðherra önnum kafnir við að leysa þann hnút sem blasti við í kjaradeilum vinnumarkaðarins.

Á meðan minnihlutinn hefur varið sínum tíma í einhverjum hliðarveruleika þar sem þráhyggja fyrir Evrópusambandinu virðist ráða ríkjum höfum við verið í raunheimum að ganga í málin 🤝 by @vidreisn
5
9 days ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up