Posted On: October 13th 2026, 02:54 pm
Njarðvík vann í gærkvöldi frækinn sigur á KR í Bónusdeild kvenna og rituðu nýja línu í sögubók kvennaboltans. Lokatölur voru 97-115 Njarðvík í vil eftir frábæran liðssigur en 115 stig er það mesta sem kvennalið Njarðvíkur hefur skorað í einum leik í úrvalsdeild í sögu félagsins.
Þetta var aðeins í níunda sinn í sögu félagsins sem Njarðvík fer í 100 stig eða meir í einum úrvalsdeildarleik en það gerðist fyrst árið 2011 þegar Ljónynjur lögðu Val í Ljónagryfjunni 100-77. Fyrir kvöldið í kvöld höfðu okkar konur mest skorað 108 stig í einum leik en það var gegn Snæfell árið 2023. Metið féll í gær þar sem Brittany Dinkins gerði 30 stig, Helena Rafnsdóttir 21, Ásta Júlía Grímsdóttir 19, Sara Björk Logadóttir 15 og Krista Gló Magnúsdóttir 14.
Allir 100 stiga leikir kvennaliðs Njarðvíkur í úrvalsdeild:
2011: Njarðvík 100-77 Valur
2022: Breiðablik 76-100 Njarðvík
2022: Fjölnir 56-106 Njarðvík
2023: Njarðvík 108-46 Snæfell
2025: Njarðvík 101-93 Stjarnan
2025: Njarðvík 105-96 Keflavík
2025: Keflavík 93-102 Njarðvík
2026: Njarðvík 106-75 KR
2026: KR 97-115 Njarðvík