Instagram story viewer> @umfnofficial> Posts
2.6K
followers
508
following
Njarðvík Basketball Club
Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur
TikTok: njardvikbasketball
Twitter: UMFNOfficial
POSTS STORIES REELS TAGGED
32 liða úrslit VÍS bikarsins á morgun!

Strákarnir mæta Víði Garði í 32 liða úrslitum VÍS bikars karla á morgun í Blue Höllinni í Keflavík klukkan 17:30 en liðið sem sigrar tryggir sér sæti í 16 liða úrslitum keppninnar.

Áfram Njarðvík! taken in Njarðvík by @umfnofficial
0
11 hours ago
Download
Tap gegn KR í gær.

KR 84 - 73 Njarðvík

©Valþór by @umfnofficial
0
a day ago
Download
LEIKDAGUR!

Strákarnir halda í Vesturbæinn í kvöld og mæta þar heimamönnum í KR, klukkan 19:15.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla Njarðvíkinga til að taka rúntinn í höfuðborgina og styðja strákana, en leikurinn verður sýndur í beinni á SÝN Sport Ísland 2 fyrir þá sem ekki komast.

Áfram Njarðvík! 💚 taken in Njarðvík by @umfnofficial
15
2 days ago
Download
Vesturbærinn á fimmtudag hjá strákunum!

Stelpurnar gerðu heldur betur góða ferð í Vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöldi, og nú mæta strákarnir sterku liði KR á fimmtudagskvöld í 2. umferð Bónus deildar karla.

Við hvetjum okkar fólk til að gera sér ferð á Meistaravelli og styðja strákana til sigurs!

Mynd: Hilmar Bragi/VF

Áfram Njarðvík! taken in Njarðvík by @umfnofficial
0
4 days ago
Download
Æfingaleikur karla milli Stjörnunnar og Njarðvíkur fór fram þann 1. október 2026. 

©Valþór by @umfnofficial
0
2 days ago
Download
Valur - Njarð­vík 77-64 - 30.Sept 2026

©Valþór by @umfnofficial
0
2 days ago
Download
Naumt tap gegn ÍR í 1.deild kvenna. Njarðvík b er skipað ungum og  efnilegum leikmönnum . Lokatölur 71-78
#FyrirFánann #Njarðvík #korfubolti by @umfnofficial
0
3 days ago
Download
Njarðvík vann í gærkvöldi frækinn sigur á KR í Bónusdeild kvenna og rituðu nýja línu í sögubók kvennaboltans. Lokatölur voru 97-115 Njarðvík í vil eftir frábæran liðssigur en 115 stig er það mesta sem kvennalið Njarðvíkur hefur skorað í einum leik í úrvalsdeild í sögu félagsins.

Þetta var aðeins í níunda sinn í sögu félagsins sem Njarðvík fer í 100 stig eða meir í einum úrvalsdeildarleik en það gerðist fyrst árið 2011 þegar Ljónynjur lögðu Val í Ljónagryfjunni 100-77. Fyrir kvöldið í kvöld höfðu okkar konur mest skorað 108 stig í einum leik en það var gegn Snæfell árið 2023. Metið féll í gær þar sem Brittany Dinkins gerði 30 stig, Helena Rafnsdóttir 21, Ásta Júlía Grímsdóttir 19, Sara Björk Logadóttir 15 og Krista Gló Magnúsdóttir 14.

Allir 100 stiga leikir kvennaliðs Njarðvíkur í úrvalsdeild:

2011: Njarðvík 100-77 Valur
2022: Breiðablik 76-100 Njarðvík
2022: Fjölnir 56-106 Njarðvík
2023: Njarðvík 108-46 Snæfell
2025: Njarðvík 101-93 Stjarnan
2025: Njarðvík 105-96 Keflavík
2025: Keflavík 93-102 Njarðvík
2026: Njarðvík 106-75 KR
2026: KR 97-115 Njarðvík by @umfnofficial
0
4 days ago
Download
Frábær sigur á sterku liði KR á Meistaravöllum í kvöld!

Lokatölur voru 97-115 í stórskemmtilegum körfuboltaleik eins og stigaskorið gefur til kynna.

Boltinn flæddi virkilega vel á milli okkar kvenna sem skilaði sér í 28 stoðsendingum hjá Njarðvíkurliðinu auk þess sem þriggja stiga nýting okkar var 56%!

Frábær liðsframmistaða en Brittany endaði stigahæst með 30 stig auk 6 frákasta og 11 stoðsendinga.
Helena skoraði 21 stig úr 88% nýtingu, Ásta með 19 stig og 13 fráköst og þá gerðu Sara Björk 15 stig og Krista Gló 14 stig af bekknum.

Strákarnir mæta í Vesturbæinn á fimmtudaginn og mæta KR-ingum þar, en næst á dagskrá hjá stelpunum er heimaleikur gegn Fjölni þann 20. október.

Áfram Njarðvík! 💚 taken in Njarðvík by @umfnofficial
0
5 days ago
Download
LEIKDAGUR 🥳💚

Njarðvíkurliðin verða í heimsókn í Vesturbænum þessa vikuna en stelpurnar fara í heimsókn á Meistaravelli í kvöld og strákarnir á fimmtudag

Leikurinn hjá stelpunum í kvöld hefst klukkan 19:15 og hvetjum við Njarðvíkinga til að mæta og styðja stelpurnar.
Fyrir þá sem eiga ekki heimangengt verður leikurinn í beinni útsendingu á SÝN Sport Ísland.

Áfram Njarðvík! taken in Njarðvík by @umfnofficial
0
5 days ago
Download
Njarðvík - Tindastóll 

©Valþór by @umfnofficial
0
7 days ago
Download
Útileikur hjá stelpunum á mánudag!

Stelpurnar okkara fara í heimsókn í Vesturbæ Reykjavíkur og mæta heimakonum í KR á Meistaravöllum.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og hvetjum við okkar fólk til að taka rúntinn og styðja stelpurnar

Áfram Njarðvík! by @umfnofficial
0
7 days ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up