Instagram story viewer> @ragna.is> Posts
7.6K
followers
3924
following
Foodblogger 🍰
Head of Research
Product Manager
Singer🎶
Foodblogger
Emergency nurse 💉
Forensic nurse 🔎
[email protected]
POSTS STORIES REELS TAGGED
Hæ, ég er Ragna. hver er þessi kona eiginlega? 🥰

Ég ólst upp í Vík í Mýrdal, með fjallið á aðra hönd og hafið á hina. fjölskyldan mín býr ennþá þar 🗻
Mamma er kokkur og pabbi minn og bróðir minn eru bifvélavirkjar. 
Það er ómögulegt að vita hvaðan matar- og bílaáhuginn minn kemur 😅

Davíð er eiginmaðurinn minn, hann er sá sem neyðist til að taka þátt í öllu sem mér dettur í hug. Við búum í Ártúnsholtinu í húsi sem við erum búin að taka í gegn, bæði að innan og einnig allan garðinn. Alveg sjálf 💪🏻
Svo er það Ísak, kötturinn okkar sem er líklega frægari en ég hérna. Við eigum svo fjögur börn sem fá oftast að vera í friði fyrir myndavélinni😏

Ég útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur 2010, vann lengi á bráðadeildinni á Landspítalanum og tek enn vaktir þar (þegar ég hef tíma) 👏🏻 
Kannski er það þess vegna sem uppskriftirnar mínar eru í grömmum en ekki bollum 😆

Ég kláraði MPM í verkefnastjórnun frá HR 2019 og í dag er ég Head of Research hjá Dala, heilbrigðistæknifyrirtæki á Íslandi. 
Ég hef einnig stjórnað stórum erlendum verkefnum og klínískum rannsóknum 🔬🧑‍🔬

Ég er söngkona, lærði söng og hef síðustu ár mest verið í bakröddum síðustu ár 🎶
Ég hef líka mikinn áhuga á tísku og fötum. Sem hentar stóra sviðinu ansi vel 💃

Takk fyrir að fylgja mér og áhugamálunum mínum 💕

Myndirnar voru teknar af @sunnaljosmyndari fyrir @gestgjafinn síðustu páska 🐣 taken in Ártúnsholt by @ragna.is
6
11 days ago
Download
Heimabakað naan brauð á pönnu 🥘

mjúkt og bragðgott naan brauð með hvítlaukssmjöri sem slær alltaf í gegn í matarboðum. þetta er ein af elstu uppskriftunum á blogginu og ég geri hana ennþá reglulega.

Það þarf bara hveiti, þurrger, volgt vatn, mjólk, egg, smá sykur og salt. deigið lyftir sér í ca klukkutíma og svo er brauðið flatt út í höndunum og steikt á mjög heitri pönnu. penslað með bræddu hvítlaukssmjöri og steinselju beint af pönnunni, namm.

Fullkomið með butter chicken, indverskum mat eða bara góðri súpu.
trikk: á sumrin er geggjað að skella naan brauðinu á grillið.

Uppskrift (gerir ca 12 brauð) 
1 pakki þurrger
270-300 gr volgt vatn (ekki heitt)
50 gr sykur
750 gr hveiti (helst brauðhveiti)
2 tsk salt
5 msk mjólk
1 egg

-Setjið þurrefnin í skál og hellið geri, vatninu, mjólkinni og egginu saman við.
-Hnoðið í ca 6 mín. deigið á ekki að vera klístrað en ég bæti oft við aðeins vatni. 
-Látið lyfta sér í ca klukkutíma.
-Takið búta af deiginu, fletjið út í höndunum og steikið á mjög heitri pönnu. snúið þegar brauðið er orðið dökkt.

HVÍTLAUKSSMJÖR
100 g smjör
1 hvítlauksrif, pressað
steinselja eða kóríander eftir smekk

Það er ekkert mál að frysta brauðið. Ekki setja hvítlaukssmjörið á ef þið ætlið ykkur að gera það 🙏🏻 

hvað finnst ykkur best að borða með naan?

#naanbrauð #naan #heimabakað #indverskurmatur #naanbread taken in Ártúnsholt by @ragna.is
4
14 days ago
Download
Samstarf við Ísband 🤝

í allt sumar fékk ég að keyra Jeep Wrangler Rubicon 4xe um Ísland og ég verð bara að segja ykkur frá honum 🏔️🚙

við fórum um hálendið, yfir ár, upp grýtta jeppaslóða og eftir endalausum F-vegum og hann bara fór þetta allt eins og ekkert væri. plug-in hybrid, ótrúlega kraftmikill, en samt svo þægilegur og mjúkur á malbikinu heima í borginni⚡

það sem kom mér mest á óvart er hvað hann er auðveldur að keyra. Hann lítur út eins og alvöru torfærubíll/jeppi… og er það, en hann er líka bara frábær fjölskyldubíll í daglegu lífi. ekkert mál fyrir mig að keyra hann, í bænum eða uppi á fjöllum 💪
 
þetta er bíll sem höndlar allt, hvort sem það er búðarferðin eða ævintýri á hálendinu, og ég naut lífsins í botn allt sumarið 💛

ég ætla að sýna ykkur aðeins hvernig þetta var og þakka fyrir mig! 

Collaboration with Ísband 🤝

all summer I got to drive the Jeep Wrangler Rubicon 4xe around Iceland and I have to tell you about it 🇮🇸🏔️

we drove the Highlands, river crossings, rocky 4x4 tracks and gravel F-roads, and this plug-in hybrid just did it all. so much power, but still smooth and comfortable on normal roads too ⚡

what surprised me most is how easy it is to drive. it looks like a serious off-road car, and it is, but it is also just a great family car for everyday life. no problem for me behind the wheel, in town or up in the mountains 💪

a car that handles everything, from the grocery run to a highland adventure. here is a little look at how it felt 💛
where would you drive first in Iceland?

 #jeep #rubicon4xe #jeepwrangler #jeepgirl  #icelandichighlands @isband_bilaumbod taken in Reykjavík, Iceland by @ragna.is
2
15 days ago
Download
Stundum er lífið hræðilega busy og við hjónin þurfum virkilega að gefa okkur stundir til að slaka á og vera bara við tvö og njóta. Síðustu vikur hafa verið flóknar í vinnum og öðru stússi og þó svo það væri bara þriðjudagur ákváðum við að skreppa í nýja baðlónið í Hveragerði sem heitir @reykjabod og er bara í rétt rúmlega 30 mín akstursfjarlægð að heiman!🤍

Myndbandið segir eiginlega allt um upplifunina en aukalega langar mig að bæta við að Baðhúsið (auka viðbót við upplifunina) er æðislegt (en það má bara ekki vera með síma þar)

Það var gaman að vera þarna í ljósaskiptunum og sjá lónið breytast með tilkomu leiksins á milli ljóss, elds, gufu og vatns ☺️

Við mælum með. Hlakka til að fara aftur! 
@davidsvavars 

#naturebath #visiticeland #hotspring #iceland #reykjabod taken in Reykjaböð by @ragna.is
2
24 days ago
Download
Eitt skemmtilegt video af uppáhalds kettinum okkar/ykkar 
Ísak í margskonar fyrirsætustörfum 😻

#burmillacat #catsofinstagram taken in Ártúnsholt by @ragna.is
1
a month ago
Download
Hvernig geymum við lokið á heita pottinum? -var mjög algeng spurning hjá þeim sem horfðu á “Garðurinn tilbúinn” reel-ið 🤩 

Sko… 

Við erum með Snorralaug frá @normx.is og keyptum lokið þar einnig. Til þess að þessi lok haldi pottinum heitum þurfa þau að vera vel einangrandi og eigi  þau að halda snjó þá þurfa þau einnig að vera mjög sterk. 
Því fylgir þá líka að þau eru stór og að mínu mati ekki falleg þegar þau eru ekki á pottinum 🫣

Margir hafa veggi eða svæði þar hægt er að stinga þeim inní þegar potturinn er opinn en við kusum að útbúa hálfgerða vöggu (@davidsvavars hannaði og smíðaði) ofan í pallinn þar sem maður ýtir lokinu ofan í. Krakkarnir ná að setja lokið þarna ofaní en það er of þungt fyrir aðra en fullorðna að koma því aftur uppúr 💪🏻 
Fyrir okkur skipti það máli að það væri ekki að skyggja á útsýnið eða vera sett uppvið veggi þar sem það geti fokið eða skemmt veggljósin 🙏🏻

Hvað viljiði sjá meira? 

#ragnapunkturis #heiturpottur #framkvæmdir #garðurinn taken in Ártúnsholt by @ragna.is
6
a month ago
Download
Garðurinn - COMPLETED 💫

Ferlið hefur tekið 2 ár og ótal handtök. Skrúfur skrúfaðar, spýtur sagaðar, hjólbörur tæmdar og málningu skellt á spýtur. Svona verkefni gerast ekki á einni helgi, og það tók vissulega lengri tíma en planað var, eins og öll almennileg DIY verkefni. En það er einmitt þess virði.

Afraksturinn er þetta yndislega svæði við húsið okkar sem við notum allt árið um kring, sumar sem vetur. 
Það er fátt betra en að sitja í heitum potti í snjókomu og horfa yfir Elliðaárdalinn. Útsýnið klikkar aldrei 🤍

Davíð er magnaður að smíða þetta allt frá grunni eftir mínum hugmyndum, og enginn frændi er betri en Jói þegar það kemur að því að mæta með gröfu og vörubíl alla leið frá Vík til að hjálpa. Það þarf gott teymi í svona verkefni, töluverða þolinmæði, útsjónarsemi og slatta af peningum 😃

Það hefði JÚ verið töluvert ódýrara og einfaldara að setja pottinn bara fyrir aftan bílskúrinn. En hvar er gamanið í því? Stundum er stóra og flókna leiðin einfaldlega rétta leiðin.

Hefðuð þið þorað í svona verkefni?

#garðurinn #heiturpottur #framkvæmdir #diyverkefni #heimiliðokkar taken in Ártúnsholt by @ragna.is
7
a month ago
Download
SJÓNVARPSKAKA 🤎🥥

þessi klassíska sjónvarpskaka er alltaf í topp 5 mest skoðuðu uppskriftunum á matarblogginu mínu ragna.is og það er ekki að ástæðulausu. Mjúkur ljós botn og karamelluð kókosbráðin ofan á er fullkomin af þykkt, hrynur ekki af og bráðnar í munni 🤩

Uppskriftin er frá 2011 á blogginu og hefur ekki klikkað síðan!
Það er eiginlega ótrúlegt að hugsa til þess hve margir ætli hafi bakað hana á þessum 15 árum 😃 

En í dag langaði mig að sýna ykkur hvernig kakan er gerð, skref fyrir skref. 

BOTNINN:
4 egg
300 gr sykur
1 tsk vanilluextract
250 gr hveiti
3 tsk lyftiduft
2 dl mjólk
50 gr smjör

Egg og sykur þeytt þar til létt og ljóst, Þurrefnin sigtuð saman við og vanillu bætt við. Smjör og mjólk hitað þar til smjörið bráðnar og hellt út í deigið (ekki sjóðheitt!) 
Deigið á að vera þunnt, ekki panikka, þannig á það að vera :) Bakað í smurðu skúffukökumóti við 180°C í ca 30-40 mín.

KARAMELLU-KÓKOSBRÁÐIN:
100 gr smjör
150 gr kókosmjöl
200 gr púðursykur
1/2 dl mjólk

Allt soðið saman í potti við vægan hita í 2 mínútur. Dreift yfir heita kökuna og hún bökuð í 5 mínútur í viðbót. 
Þetta síðasta skref er leyndarmálið á bak við karamelluáferðina!

Alla uppskriftina með myndum af hverju skrefi finnur þú á ragna.is, linkur í bio. Gúgglaðu líka bara “sjónvarpskaka ragna” :)
 
Vistaðu þetta reel fyrir næsta kaffiboð og taggaðu vinkonu sem elskar sjónvarpsköku 💛

kveðja, Ragna

#sjónvarpskaka #uppskrift #ragnapunkturis #heimabakað #matarblogg taken in Ártúnsholt by @ragna.is
3
a month ago
Download
Etanól borðarinn sem gerir hauströkkrið ljúft og hlýtt enda er uppáhalds tíminn minn að hefjast 🕯️🍂 

Þið sem þekkið mig vel vitið að kerti, eldur og kósýkvöld, setjast uppí sófa og njóta er uppáhalds og sérstaklega þegar fyrsta hauströkkrið fer að læðast að. 

Þegar ég sá þennan etanol borð-arinn varð ég alveg heilluð og varð að eignast! 🔥
 
Það er ótrúlegt sjónarspil að sjá eldlogana leika upp glerið í spíral og á sama tíma veitir arinninn ljúfan yl og snarklandi eldhljóð ☺️ Það er ekkert mál að slökkva á honum og hann má bæði vera úti og inni.

Kíkið á @bloss.is til að sjá allar stærðir og liti og ef þið notið afsláttarkóðann RAGNA20 þá fáiði 20% afslátt 🤍

#etanólarinn #borðarinn #haustkósý #ad #heimilið taken in Reykjavík, Iceland by @ragna.is
3
2 months ago
Download
Mér líður alltaf eins og hálendið sé ekki áfangastaður heldur tilfinning.

Þennan dag var planið einfalt: fylla á tankinn, setja kaffi í brúsann og keyra. Ekkert GPS til að fylgja, engin bókun sem beið okkar, ekkert “við þurfum að vera komin fyrir sex”. Bara vegurinn og auðnin.

Það er eitthvað sem gerist í innra með manni stuttu eftir að malbikinu sleppir. Allt sem bíður heima, tölvupóstarnir, þvotturinn, listarnir, verður einhvern veginn minna. 
Landið er svo stórt að vandamálin skreppa saman ✨

Þennan dag stoppuðum við ekki, við keyrðum áfram þar til malbikið tók skyndilega aftur við og þar tókum við ákvörðun hvert við ætluðum næst. 

Enginn áfangastaður, engin dagskrá, bara áfram.

Hvaða ferðalag á Íslandi hugsar þú til þegar þú horfir á þetta? Segðu mér í kommentum ⛰️

#hálendið #ferðalög #ísland #jeeprubicon #icelandtravel @isband_bilaumbod taken in Tjaldafell by @ragna.is
4
2 months ago
Download
Sunnudagur, engin plön, bara sól, Rubicon og þakið af. 🌞

Örfáir boltar og þakið var farið af og skutlað inn í skúr ✨
Skottið fyllt af einhverju skemmtilegu dóti fyrir ævintýraferð og brunað í Heiðmörk. 

Sykurpúðar, brauð á spítu og svo trixið sem sló í gegn… popp poppað yfir kolunum! 🍿🔥

Við renndum svo að Rauðavatni þar sem krakkarnir óðu og veiddu síli á meðan við hjónkn nutum kyrrðarinnar 🤍 

Að sjálfsögðu var endað á klassískum ísrúnti niður Laugaveginn 
🍦

Ævintýri þurfa ekki að vera flókin eða löngu plönuð. Þú þarft ekki einu sinni að fara úr Borginni. Bara að taka þakið af! 

#Jeep #Rubicon @isband_bilaumbod @jeep_iceland #útivera #fjölskyldustund |ss taken in Reykjavík, Iceland by @ragna.is
2
2 months ago
Download
Alþjóðlegi kattadagurinn er í dag og Ísak fær því smá athygli hér (eins og hann fái hana ekki nóga fyrir). 
Hann er algjör prakkari, hlýðir engu en hann bætir það upp með miklu kúri og að vera afskaplega ljúfur og sætur. #Óþekkt og ást í jöfnum hlutföllum 🤍🐱 #kattadagurinn #internationalcatday taken in Reykjavík, Iceland by @ragna.is
4
2 months ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up