Instagram story viewer> @salvoreythors9> Posts
6K
followers
1002
following
Content creator, mamma, íþróttafræðingur, flugfreyja
Contact: [email protected]
POSTS STORIES REELS TAGGED
Part tvö af framkvæmdum á sumó! 🤎
Before and after í lokin🤝

Þetta var í raun bara einn heill dagur sem ég tók upp og klippti saman, þannig að það er ennþá hellingur eftir! Næst þarf að koma með borðstofustólana, hægindastól og stofuborð ásamt einhverju öðru dúlleríi sem fer í næsta part.

Svo er þetta auðvitað bara byrjunin… Það á eftir að mála flesta veggi, rífa niður eldhúsinnréttinguna og setja nýja, taka baðherbergið í gegn og innrétta bæði barnaherbergið og hjónaherbergið. En eitt skref í einu! Gestahúsið fær síðan bara að bíða!

Ég þarf að læra að taka mér tíma í hlutina og ekki æða í allt í einu þó ég sé þannig gerð. Í svona framkvæmdum þarf maður samt aðeins að hugsa, sjá hlutina saman og gera þetta í réttri röð, sérstaklega þar sem ég er enginn expert en ég er klárlega með vision!

Ástæðan fyrir því að ég málaði ekki strax á meðan húsgögnin voru úti er einfaldlega sú að það fer fljótlega að verða erfitt að komast að bústaðnum vegna snjós. Við vildum því frekar drífa í að koma stærri húsgögnunum uppeftir á meðan það er enn auðvelt. Ég get svo dundað mér við að mála í vetur þegar ég kemst uppeftir!

Í þessum parti komu allavega tvö ný húsgögn inn, nýja borðstofuborðið sem ég fann á Markaðstorgi IKEA og svo aðalatriðið, nýi sófinn frá Efnisveitunni sem leysti gamla sófann loksins af hólmi

Núna þarf ég hins vegar ykkar hjálp með vegginn og viðinn! Mála ég bara vegginn? Mála ég bæði? Bæsa viðinn? Eða setja jafnvel veggfóður á vegginn? by @salvoreythors9
15
13 days ago
Download
Vegna jákvæðra viðbragða ætla ég að leyfa ykkur að fylgjast með framkvæmdum í bústaðnum! Þetta verða líklega margir partar/reels þar sem við erum að fara að taka hann ágætlega í gegn. Við byrjum á part 1 þar sem ég sýni ykkur bústaðinn okkar að utan og fer yfir hvað þarf að gera, en það m.a þarf að fara yfir pallinn, klára að bera á bústaðinn á hliðunum(vorum að bera á hann að framan), laga brúna, laga þakið, stökkva meira á gróðurinn, athuga hvað skyldi vera að pottinum og seinna meir setja hann á annan stað ef við höldum plani, sömuleiðis langar mig að stækka pallinn á hliðunum og gera eitthvað meira! Jebb margt sem mig langar að gera svo þetta verður tekið í skrefum! 

Næsti partur verður þegar við tökum út gömul húsgögn og fáum inn ný, sömuleiðis þarf að mála og bæsa viðinn að innann. Við fáum rafvirkja til að staðfesta hvort við getum síðan sett inn nýja eldhúsinnréttingu(ekki það að það sé eldhúsinnrétting núna, heldur bara eh sem virkaði fyrir hann🤣)! Spennandi

En þið fáið að fylgjast með þessu öllu saman frá byrjun til enda❤️🏡 #sumarbústaður #framkvæmdir #ísland by @salvoreythors9
18
2 months ago
Download
Elsku fallegi pabbi minn sem ég sakna svo sárt. Veröldin verður aldrei söm án þín. Þú ert floginn í þitt hinsta flug og munt núna lýsa upp himingeiminn.

Ég er svo þakklàt fyrir allar þær yndislegu og fallegu minningarnar af þér elsku pabbi minn, ég mun sjá til þess að þær lifi að eilífu.

Það er svo sárt að hugsa til þess að ég fái ekki að knúsa þig og kyssa einu sinni enn, finna fyrir hlýju höndunum þínum og spjalla við þig um allt milli himins og jarðar. 

Söknuðurinn er ólýsanlegur elsku pabbi minn og get ég ekki beðið eftir því þegar þú tekur á móti mér í pabbaknús og spjall þegar að minn tími kemur. ❤️

Elska þig, alltaf❤️🌹 by @salvoreythors9
164
4 years ago
Download
Partur 1 og 2 komið á vegginn minn, hlakka til að sýna ykkur meira🏡👷🏽‍♀️ by @salvoreythors9
0
6 days ago
Download
Það eru spennandi tímar hjá ykkar konu!

Lífið er alls konar, það er víst, en það er líka svo ótrúlega fallegt. Síðustu ár hafa kennt mér að ekkert er sjálfsagt, að vera dugleg að grípa tækifærin, setja mér markmið og vinna hörðum höndum að því sem mig langar að áorka í þessu eina lífi sem við höfum. Það er svoooo góð tilfinning þegar hlutirnir sem maður hefur lagt mikið á sig fyrir fara að skila sér. Spennt fyrir því sem fram undan er❤️ by @salvoreythors9
11
7 days ago
Download
Photo dump frá síðustu viku 🤎

Við fórum loksins upp í bústað og komum með nýtt borðstofuborð og sófa! Vantar enn stóla og sófaborð eeen ég var að kaupa stóla í dag í bænum sem við förum með upp eftir fljótlega 🥹

Við tæmdum líka allskonar dót úr bústaðnum sem ekki var lengur not fyrir og fórum með í Sorpu… og það var erfiðara en ég hélt, get ég sagt ykkur. Þó við værum að henda einum ljótasta sófa landsins þá fylgdu honum 1000 minningar enda búinn að vera þarna í 28 ár, ásamt svo mörgu öðru.

En það þurftu að koma smá breytingar svo okkur liði meira eins og maður væri að gera staðinn að sínum. Við ætlum samt klárlega að halda í anda pabba, hengja upp flugvélamyndirnar hans og hafa fullt þarna sem minnir á hann ✈️

Lífið hefur annars verið fínt! Er loksins byrjuð að æfa aftur og finnst ég komin á mjög gott ról. Nú er bara að halda því áfram því bæði hausinn og líkaminn eru töluvert ánægðari með mig þannig 🥰 

Part 2 af sumóupdate kemur fljótlega 🤎 by @salvoreythors9
4
19 days ago
Download
Fagna drottningu landsins @anitarosth 🥂❤️

From practice to performance 💃🏼

@katavignis sá um að plana flashmob fyrir drottninguna okkar og það kom auðvitað ekkert annað til greina en að vera með🫡 Æfðum þetta saman fyrir afmælið og svo var bara að vona að æfingarnar myndu skila sér þegar á hólminn var komið!

Elska svo ❤️ by @salvoreythors9
16
a month ago
Download
30 gráður og sól > 3 gráður og óveður…. Always ☀️ by @salvoreythors9
8
a month ago
Download
10/10, myndi öskursyngja ABBA aftur með @christinagoldstein_ 🪩

Takk fyrir okkur elsku besta @anitarosth 🦋 þú flotta dansdrottning taken in Háskólabíó by @salvoreythors9
8
a month ago
Download
Barcelona með besties💕 taken in Barcelona, Spain by @salvoreythors9
7
a month ago
Download
Gelluferð til Barcelona ✈️☀️
Aðeins að kúpla sig út og slaka á, nauðsynlegt😎

🎶if you know, you know (off⛺️) by @salvoreythors9
12
a month ago
Download
JÆJA! Kæra dagbók😎

Fæðingarorlofið með Eyþóri Óla hefur verið svo dýrmætur og skemmtilegur tími saman, við erum að ná að njóta þess í botn að vera heima að bralla eitthvað skemmtilegt eða í bústaðar leiðangri að finna húsgögn! Hann nefnilega hefur miklar skoðanir á því😅

En inn á milli hef ég verið að díla við kvíða sem hefur verið aðeins að flækjast fyrir mér. Ég var komin með svo góð tök á honum, en eftir að pabbi féll frá fór hann aftur að láta sjá sig án þess að vita almennilega af hverju… mjög pirrandi þó ég sjálf segi frá

En ég er bara að læra aftur að taka einn dag í einu, leyfa góðu dögunum að vera góðum og vera aðeins mýkri við sjálfa mig hina dagana ❤️ Og þessi litli gleðigjafi ásamt Amelíu og Óla gera dagana svo sannarlega betri😍 by @salvoreythors9
15
2 months ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up