Instagram story viewer> @selfossfotbolti> Posts
3.8K
followers
407
following
Knattspyrnudeild Selfoss
POSTS STORIES REELS TAGGED
Home is where the heart is - JÁVERKVÖLLURINN ❤️ by @selfossfotbolti
0
13 hours ago
Download
JÁVERK-völlurinn verður áfram JÁVERK-völlurinn ❤️

Byggingafyrirtækið JÁVERK og Knattspyrnudeild Selfoss hafa undirritað áframhaldandi samning þess efnis að heimavöllur Selfoss heiti JÁVERK-völlurinn og JÁVERK því áfram einn af okkar aðalstyrktaraðilum. Samningurinn gildir til næstu tveggja ára.

Völlurinn hefur borið nafnið frá árinu 2014 og hefur það fest sig vel í sessi meðal Selfyssinga og knattspyrnuáhugafólks um land allt. 

Áframhaldandi stuðningur JÁVERK er mikilvægur fyrir starf og uppbyggingu knattspyrnudeildarinnar. Deildin þakkar fyrirtækinu traustið og stuðninginn og hlakkar til áframhaldandi samstarfs. by @selfossfotbolti
0
13 hours ago
Download
Til hamingju með frábæran feril, Bjarni!

Bjarni Jóhannsson, leikjahæsti knattspyrnuþjálfari Íslandssögunnar, hefur ákveðið að draga sig endanlega í hlé frá þjálfun eftir 43 ára feril, og þar af 37 tímabil sem þjálfari í meistaraflokki by @selfossfotbolti
1
a day ago
Download
Fótboltaæfingar Suðra⚽️

Langar þig að æfa fótbolta í frábærum félagsskap? Eða þekkirðu einhvern sem vill slást í hópinn?

Íþróttafélagið Suðri, íþróttafélag fatlaðra á Suðurlandi, býður upp á fótboltaæfingar í Kappahl-höllinni tvisvar í viku:

⚽ Föstudaga kl. 15:30–16:30
⚽ Sunnudaga kl. 17:00–18:00

Hjá Suðra er mjög skemmtilegur félagsskapur og gleðin í fyrirrúmi. 

Hópurinn brallar líka ýmislegt skemmtilegt saman utan fótboltavallarins, svo það er um að gera að slást í hópinn!

Við hvetjum áhugasama, 16 ára og eldri, til að kíkja á æfingu og prófa að vera með.

Þjálfari liðsins er Þórdís Rakel Smáradóttir og veitir hún nánari upplýsingar í síma 848-1128. Einnig er hægt að skrá sig á Abler. by @selfossfotbolti
0
a day ago
Download
Sjálfboðaliði ársins ❤️

Viðar er  maður sem þarf sjaldnast að biðja tvisvar. Ef það þarf að manna gæslu, bera sjúkrabörur, grilla hamborgara eða sinna einhverju öðru verkefni, þá er hann yfirleitt mættur áður en spurningin er kláruð.

Viðar er einn af þessum sjálfboðaliðum sem gengur í öll störf af sama metnaði og jákvæðni. Hann er boðinn og búinn þegar þarf að setja upp skilti, undirbúa fyrir grillið á Kótelettunni eða leysa verkefni sem enginn annar hefur haft tíma til að sinna.

Það eru sjálfboðaliðar eins og hann sem halda starfinu gangandi. Fólk sem mætir, tekur til hendinni og gerir það með bros á vör, án þess að vera að leita eftir athygli eða viðurkenningu.

Fyrir ómetanlegt framlag sitt, vinnusemi og einstakan dugnað er okkur því sönn ánægja að útnefna Viðar Arason sjálfboðaliða ársins.
Innilega til hamingju, Viðar! by @selfossfotbolti
0
2 days ago
Download
Hver er þinn uppáhalds DAGUR? 

Dagur áfram í vínrauðu ❤️

Varnarmaðurinn og Selfyssingurinn stæðilegi, Dagur Jósefsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss. 

Dagur átti afar gott sumar í hjarta varnarinnar, spilaði 32 leiki í öllum keppnum og var traustur í öftustu línu. 

Þetta eru frábærar fréttir fyrir Selfoss og mikill styrkur fyrir liðið að Dagur verði vínrauður næstu tvö árin! by @selfossfotbolti
1
4 days ago
Download
Félagi ársins ❤️

Jón Karl Jónsson var á lokahófi knattspyrnudeildar útnefndur Félagi ársins en Jón er einn af máttarstólpum knattspyrnudeildarinnar. 

Jón Karl mætir í sjálfboðaliðastörf af sömu jákvæðni og dugnaði og hann sinnir öllum öðrum verkefnum. Þegar eitthvað bjátar á er hann líka oft einn af þeim fyrstu til að stíga fram, hjálpa til og finna lausn. Það eru félagar eins og hann sem gera gott félag enn betra. Fólk sem gefur af tíma sínum, þekkingu og krafti og lætur hlutina einfaldlega ganga upp.

Tekið af Facebook síðu Jóns:

Rekstur íþróttafélaga gengur mikið út á sjálfboðaliða og þeirra framlag til félaga sem gerir þeim mögulegt að halda úti öflugri starfsemi. Mitt framlag þetta árið var eftir farandi:

-Akstur á langferaðbifreiðum frá GTS ehf um 6200 km í úti leiki.

-Vinnustundir vegna úti leikja um 260 klst.

-Vinnustundir vegna heima leikja um 64 klst.

-Vinnustundir alls um 324 klst sem eru um 2 mánuðir í dagvinnu en þessi vinna fer að mestu leiti fram um kvöld og helgar.

-Útsending á leikjum á Selfosstv fótbolti um 106 klst sem eru bæði leikir heima og heiman.

-Fjöldi leikja heima 23, að heiman 30. Samtals 53.

Takk fyrir þig Jón Karl, ❤ by @selfossfotbolti
1
5 days ago
Download
Selfyssingar skora og halda hreinu í Þýskalandi 🔥

Þær Hildur Eva, Ásdís Erla og Sara Rún standa í ströngu með U17 ára liði Íslands í Þýskalandi en liðið leikur nú þrjá leiki í undankeppni fyrir EM. 

Á föstudag sigraði liðið Tékklandi í fyrsta leiknum, 3-0. Sara Rún og Hildur Eva voru í byrjunarliði Íslands en Sara Rún kom íslenska liðinu á bragðið þegar hún skoraði frábært mark fyrir utan teig beint upp í skeytin. 

Sara Rún og Hildur voru aftur í byrjunarliðinu í dag þegar liðið mætti Þjóðverjum. Leiknum lauk með 1-2 sigri Þjóðverja og gaf íslenska liðið þeim þýsku ekkert eftir. Ásdís Erla kom inná undir lok leiks. 

Síðasti leikurinn í þessu verkefni er á fimmtudag gegn Kasakstan. by @selfossfotbolti
4
5 days ago
Download
Verðlaunahafar í 2. flokki 🔥 by @selfossfotbolti
0
6 days ago
Download
Viðurkenningar meistaraflokks karla fyrir sumarið 2026 🤩 by @selfossfotbolti
0
7 days ago
Download
Herramenn athugið, takið kvöldið frá 👀 // miðasala á Stubb.is og appinu. by @selfossfotbolti
0
8 days ago
Download
Hér má sjá þær viðurkenningar sem voru veittar meistaraflokki kvenna á slúttinu á laugardag 🤩 by @selfossfotbolti
0
9 days ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up