Instagram story viewer> @stehilm> Posts
2.1K
followers
566
following
POSTS STORIES REELS TAGGED
🎄✨ NÚ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ – MIÐASALA ER HAFIN!

KOMDU UM JÓLIN tekur yfir Eldborg laugardaginn 5. desember – og við ætlum að gera alvöru jóla-partý úr kvöldinu! 🥂

Birgitta Haukdal • Stefán Hilmarsson • Ragga Gísla • Klara Elías • Klara Einars • Magni • Gunnar Óla • Vignir Snær

Stórar raddir, stór lög, jólalögin sem koma okkur í gírinn og fullt af gleði á sviðinu.

🎄 Komdu með vinahópinn.
🥂 Komdu með vinnufélagana.
✨ Komdu með fjölskylduna.

Bara ekki bíða of lengi með miðana.

Tvær sýningar í Eldborg: kl. 17:00 og 21:00.

🎟️ Miðasala er hafin á harpa.is – https://www.harpa.is/vidburdir/22277 veldu sýningu og tryggðu þér góð sæti núna.

**5. desember ætlum við að koma by @stehilm
1
a month ago
Download
Miðasala á afmælistónleikana hefst þann 10. mars kl. 10:00 á tix.is. Sjáumst kát við höfnina á hásumri. by @stehilm
2
7 months ago
Download
Miðasala á afmælistónleikana hefst þann 10. mars kl. 10:00. Sjáumst kát við höfnina á hásumri. by @stehilm
1
7 months ago
Download
Miðasala á afmælistónleikana hefst þann 10. mars kl. 10. En eldheitum áhangendum gefst tækifæri til að skrá sig á forsölulista með því að smella á slóð í 'bio'.

Skráning er opin til 6. mars, en eftir að henni lýkur fá þau sem skráðu sig sendan forsöluhlekk í tölvupósti, sem veitir aðgang að miðasölu áður en hin formlega miðasala hefst. 

Það er svoleiðis. by @stehilm
0
8 months ago
Download
„Der bor en bager på Nörregade“, segir í ljóðinu. Bakkelsið var þjóðlegt í bakaríinu við Dalveg áðan. by @stehilm
0
9 months ago
Download
Afturför hefur orðið í dómgæslu/reglum handboltans. Tvær brottvísanir með stuttu millibili á Þjóðverja áðan í leik gegn Dönum fundust mér báðar tittlingaskítur. Þetta á að heita kontakt sport. Hvorugt brotið var nálægt því að vera nastý eða hættulegt. Rugl. —Það er ekki eins og þetta hafi verið í líkingu við 'júgga-bragðið'. by @stehilm
0
9 months ago
Download
Nú styttist í árslok. Þetta var okkur sumpart örðugt ár, sökum þess að Anna Björk gekkst undir nokkuð þungan uppskurð skömmu fyrir sumarsólstöður. Fór það þó betur en á horfðist og hefur hún verið á batavegi síðan. Að öðru leyti teljum við okkur nú sem fyrr vel rúmlega lánsöm og erum þakklát fyrir góðar samverustundir með vinum og vandamönnum á árinu, ekki síst með ömmu- og afadrengnum Emanúel Degi, sem dafnar vel.

Við óskum ykkur gæfu og góðra stunda á komandi ári, sem verður tímamótaár hvað okkur snertir. Fylgir hér með erindi úr sönglagi, sem verður hluti hljómplötu, er út kemur á vormánuðum, ef guð lofar.

Lengi svo sem ljúfir tónar
lyfta hjörtum hér um slóð,
sagnaþulir, söngvasmiðir
semja áfram fögur ljóð,
skal ég ganga með þér gegnum
góða daga og dekkstu hret
og leggja mitt af mörkum
þá ég mögulega get.
Það má vera að ég verði
villuráfandi um skeið,
þegar aldur færist yfir.
Gerist margt á langri leið.

En það er heiðskírt eins og er,
og verður áfram, virðist mér. by @stehilm
1
10 months ago
Download
Fólk í gjafaleit, takið eftir; Veggspjöldin vænu gleðja vini, prýða veggi og gera góðverk. Kíkið inná stefanhilmarsson.is by @stehilm
2
10 months ago
Download
Fólk í gjafaleit, takið eftir; Veggspjöldin vænu gleðja vini, prýða veggi heimilisins og gera góðverk. Kíkið inná stefanhilmarsson.is by @stehilm
0
10 months ago
Download
Nú er tekið að sneiðast mjög um sæti á jólatónleikana á laugardaginn. Tími til að stökkva. Ekki gott að segja hvort eða hvenær þetta verður endurtekið. Það verður alltént aldrei fyrr en næsta sumar. Allir í bátana! —Nýleg mynd fyrir athygli. by @stehilm
2
10 months ago
Download
Jólatónleikar mínir í Hörpu verða nk. laugardag. Sex dagar eru til stefnu. Uppselt er á seinni tónleikana, en nokkur sæti laus á þá fyrri, kl. 18. Fer nú hver að verða síðastur að tryggja sér miða (tix.is). by @stehilm
2
10 months ago
Download
Á dögunum sendi ég frá nk. örplötu, þrjú lög, sem komin eru á streymisveitur. Ég var beðinn að deila textunum, sem er alveg sjálfsagt. Fyrsta lagið ber heitið „Það má lyfta sér upp“ og textinn er eftirfarandi:
 
Voldugur,
verðugur,
er vetur.
Það vitum við jú.
Þú mátt þola hann,
konung þann,
aðsetur
hér hefur enn nú.
 
Alltaf myrkur hann er
oft langur, finnst mér.
En þó er það eitt
sem styttir og fleytt
okkur fær fram á vor;
dýrmætar gæðastundir
í desember.
 
Máttugur
mánuður,
en mildur,
með kærkomið frí.
Ljósin tindrandi,
töfrandi.
Fjölskyldur
brátt finnast á ný.
 
Það má lyfta sér upp,
leyfa sér smá
og hafa það gott,
slaka aðeins á.
Senn fer hækkandi sól.
Ljúft getur lífið verið
í desember.
 
Hér er allt á sínum stað,
nýtt konfekt, nema hvað,
í spariskál.
Seint við fáum af því nóg.
Nú vantar bara svefn
og svolítinn snjó.
 
Voldugur,
verðugur,
er vetur.
Sá hilmir er hér,
með sitt heljartak,
breiða bak,
en getur
þó gefið af sér.
 
Það má lyfta sér upp,
leyfa sér smá
á aðventunni,
slaka aðeins á.
Það er bjart yfir borg.
Ljúft getur lífið verið
í desember.

Hér má hlýða á lagið:
https://open.spotify.com/track/2zW4hxMYlNe8mJuQNFuP9N?si=f72178dc75d04bd0

Hér líka:
https://www.youtube.com/watch?v=GbcFl3Kfmpw by @stehilm
0
10 months ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up