Instagram story viewer> @heidadags> Tagged
POSTS STORIES REELS TAGGED
Suma daga er maður minntur rækilegar á það hvað maður á gott - og gærdagurinn var þannig dagur. Þá áttum við Arna Silfurbrúðkaupsafmæli og héldum upp á það með stæl. Ég fann til allar brúðarmyndirnar og brúðkaupsferðarmyndir - sem krakkarnir höfðu aldrei séð. Hafði líka upp á Francois Fons matreiðslumanninum sem sá um brúðkaupsveisluna. Hann var svo ótrúlega hjálpsamur og fann til gömlu uppskriftirnar með hjálp frá Guðmundi Fannari samstarfsmanni sínum, þannig að ég endurgerði matinn - með frábærri hjálp og forystu frá Steinari Gauta syni okkar. Eggert sótti kransakökuna í Berhöftsbakari og Heiða og Móa gerðu mömmu sína fína á meðan. Og svo fylltist stofan af fjölda góðra vina og fjölskyldu sem komu Örnu á óvart. Takk, takk, takk - öll!

Arna á hins vegar skyldar mestu þakkirnar - að umbera mig og eiga með mér þetta góða líf. Auðvitað eru skin og það eru skúrir en ég gæti ekki óskað mér betri eiginkonu, tryggðarvin og félaga til að deila stóru og smáu - og vera svona ótrúlega skemmtileg og sönn á meðan á öllu þessu gengur. Takk Arna - ástin mín! Stefnum á gullið!
17
💗🌸🌷
57
🖤🫂💫🤍
38
11
20
🌊🌊🌊
27
💘💘
31
❄️❄️❄️
19
back to up