Instagram story viewer> @rew.video> Tagged
POSTS STORIES REELS TAGGED
REW. í Bíó Paradís // 11. júní 2026.

Það sem byrjaði sem upphitunarverk fyrir fullt hús á Mobb Deep tónleika í KR Heimilinu þann 24. mars fékk sitt eigið líf á hvíta tjaldinu í Bíó Paradís, sýnt í Dolby 7.1 Surround.

Verkið var skapað af Benedikt Frey Jónssyni, Kjartani Trauner og Gísla Galdri og unnið úr áður óséðu arkív efni úr Reykjavík um aldamótin, blandað nýju myndefni og íslensku hiphopi.

Kvöldið var einstakt. Fullur salur, ótrúleg stemning og mikil ást á íslenskri menningu. Takmarkað magn Rew varnings.

Takk til allra sem mættu, tóku þátt og gerðu kvöldið að því sem það varð.

Í verkinu komu fram:
Traunerinn, B-Ruff, Gísli Galdur, Daron Karl, Byrkir B, Class B, Saint Pete, Alexander Jarl, Emilía Hugrún, Afkvæmi Guðanna, Emmsjé Gauti, Birnir og Subterranean.

Styrmir Hauksson sá um hljóðblöndun í 7.1 surround. 

Dj Kocoon spilaði svo einstakt sett bæði fyrir og eftir sýningu. 

Sérstakar þakkir til Peroni, Bacardi, Fever-Tree, 66°Norður, Kulda, Prikið og Hopp fyrir stuðninginn.

Hér eru nokkrar myndir frá kvöldinu. 📸❤️
#REW. #bioparadis #icelandicmusic #mobbdeep
11
back to up