Instagram story viewer> @ungvinstri> Posts
715
followers
363
following
🌱 Ungliðahreyfing VG.
UVG er vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 16-35 ára til að koma sínum sjónarmiðum og skoðunum á framfæri.
POSTS STORIES REELS TAGGED
Þegar ungliðahreyfingar fimm flokka úr öllum áttum taka höndum saman, þá hlýtur það að segja eitthvað. 

🇮🇸Íslandi er betur borgið utan Evrópusambandsins 🇮🇸
Segjum NEI by @ungvinstri
6
2 months ago
Download
Ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknar, Sósíalistaflokksins, Samfylkingar, Flokks Fólksins og Vinstri Grænna gengu saman í Gleðigöngunni undir einum fána í samstöðu með hinsegin samfélaginu og mannréttindum 🏳️‍🌈🏳️‍🌈 by @ungvinstri
2
2 months ago
Download
Ályktun UVG vegna nýsamþykkts frumvarps dómsmálaráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, um brottfararstöð fyrir fólk á flótta. by @ungvinstri
0
4 months ago
Download
Vel heppnaður flokksráðsfundur að baki! 💚❤️👏Góðir gestir og innihaldsríkar umræður um áherslumál fundarins: umhverfismál og vinnumarkaðsmál. 🌍🪏
#vg #vinstrigræn #flokksráðsfundur2026
@bjarkihj @rosabjorkbrynjolfs by @ungvinstri
1
4 months ago
Download
Flokksráðsfundur VG verður haldinn þann 6. júní! 🌱✊

Við mætum í Framhaldsskólann í Mosfellsbæ þar sem málefni líðandi stundar verða í brennidepli. 

Á dagskránni er m.a. 🌎 sófaspjall og málefnastarf um umhverfismál, 👷‍♀️🧑‍⚕️umræður og rýni á mikilvægum áskorunum á vinnumarkaði og 💚 ávarp frá Rachel Millward, varaformanni Græningja í Bretlandi. 

Húsið opnar kl. 08:30 – vertu hjartanlega velkomin/n/ð!

🔗 Skráning fer fram á vg.is
#VinstriGræn 
#Flokksráðsfundur2026
#Umhverfisvernd #vinnumarkaðsmál
#vg by @ungvinstri
0
5 months ago
Download
Laugardaginn 6.6. höldum við flokksráðsfund í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. 
Fundurinn er opinn öllum félögum og framundan er spennandi dagur. 
Húsið opnar kl. 08:30 og dagskrá hefst kl. 09:00. 👉 

✍️Skráning fer fram á Vg.is
Beinn hlekkur í athugasemd!👇
#vg #vinstrigræn #flokksráðsfundur2026 by @ungvinstri
1
5 months ago
Download
Á öllum okkar listum eru ungliðar í einu af sex efstu sætunum. 🙋‍♀️🙋🙋‍♂️Á þremur listum eru oddvitarnir ungliðar. 

Kjósum ungt fólk fyrir framtíðina! 🗳️💚

#vinstrigraen #vg #uvg #vinstrid 
@vlistinn @ungvinstri @borgarbyggdarlistinn @vinstridrvk @vg.og.ohad @vinstrid.hafnarfjordur @vgakureyri @kopavogi by @ungvinstri
0
5 months ago
Download
1) 	Hver ert þú?
Ég heiti Svenný Kristins og ég er lagahöfundur sem hefur brjálaðan áhuga á skipulagsmálum og samgöngum. Ég er 26 ára og kom heim úr tónlistarnámi í Berlín haustið 2024 og hef búið hjá foreldrum að reyna að komast inn á fasteignamarkað síðan. Umhverfismál, náttúruvernd og loftslagsmál eru mér hjartans mál og mig langar að leggja áherslu á að tíminn sé kominn á fyrirtækin og hið opinbera að leggja sitt af mörkum, vandamálið á ekki að hvíla á herðum einstaklinga í samfélaginu. 

2) 	Af hverju ertu í framboði?
Bæta stöðu ungs fólks á fasteigna- og leigumarkaði og berjast gegn of þéttri byggð og of dreyfðri, ég vil fara milliveginn. Einnig langar mig að leggja mitt af mörkum við að sporna við hægri sveiflunni og tala fyrir mannréttindum, jöfnuði, náttúruvernd og réttlátara samfélagi. Ég get ekki beðið eftir Borgarlínunni og langar að flýta henni eins og hægt er og bæta strætó, hjólastíga og göngustíga í millitíðinni.

3) 	Áhugamál?
Spila, semja og flytja tónlist. Listir og menning, útivist og borðspil. 

4) 	Hvað gerir þú?
Ég starfa á Sóltúni heilsusetri, endurhæfingarstöð fyrir eldri borgara á gamla sólvangi. Starfið mitt er titlað aðstoðarmaður iðjuþjálfa en ég hef séð um tónlistarmeðferðir, viðburðastjórnun og ýmis störf á Sólvangi ásamt því að vinna “á gólfinu”. 

5) 	Hvað ætlar þú að gera fyrir ungt fólk náir þú kjöri?
Leggja mig alla fram við að koma ungu fólki að heimann og tryggja framboð af íbúðum fyrir eldri borgara. Tali fyrir þaki á leigu og leggja áherslu á ódýrari og fallegri íbúðir. Ég vil að öll börn geti stundað tómstundir að eigin vali óháð efnahagi foreldra og að skólakerfið grípi börn betur og geti komið þeim í virkni gjaldfrjálst. Húsnæði, samgöngur og velferð. Ég vil að sveitarfélagið tryggi að allar framkvæmdir taki mið af þeim breytingum sem við stöndum frammi fyrir af völdum loftslagsbreytinga til dæmis svo við sitjum ekki uppi með nýleg hverfi sem fara undir sjó. by @ungvinstri
4
5 months ago
Download
1)        Hver ert þú?
Ég er 23 ára róttækur umhverfissinni og vinstrimaður í húð og hár!
2)        Af hverju ertu í framboði
Fyrir ungt fólk, fyrir framtíðarkynslóðir og fyrir náttúruna.
3)        Áhugamál?
Hjólreiðar, eldamennska og útivera í náttúrunni.
4)        Hvað gerir þú?
Sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
5)        Hvað ætlar þú að gera fyrir ungt fólk náir þú kjöri
Berjast fyrir félagslegu og óhagnaðardrifnu húsnæði, öflugra starfi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, fleiri leikskólaplássum, öflugum almenningssamgöngum, minni loftmengun, fjármögnuðum loftslagsaðgerðum og alvöru náttúruvernd. by @ungvinstri
0
5 months ago
Download
1. Hver ert þú?
Ég heiti Sigtryggur Ellertsson og er í 4. sæti VG á Akureyri. Ég er 32 ára, giftur yndislegum manni og bý í stúdentaíbúð á vegum Háskólans á Akureyri.
2. Af hverju ertu í framboði?
Ég fór í framboð vegna sterkrar réttlætiskenndar og trúar á mannréttindi, umhverfisvernd og samfélag þar sem öllum er tekið vel. Akureyri stendur á krossgötum og ég vil taka þátt í að móta bæ þar sem velferð, menning, menntun og jöfn tækifæri eru í forgrunni.
3. Áhugamál?
Ég elska að ferðast, upplifa nýja menningu og skoða umhverfið. Ég er líka mikill hlaðvarps- og útvarpsnörd og algjör dýravinur.
4. Hvað gerir þú?
Ég rek Vistvænu Búðina á Akureyri með bróður mínum, starfa sem bókari og vinn einnig við aðhlynningu aldraðra samhliða sjúkraliðanámi.
5. Hvað viltu gera fyrir ungt fólk?
Ég vil að ungt fólk hafi raunveruleg áhrif á samfélagið. Það þarf að hlusta betur á ungt fólk og byggja kerfi sem taka mið af þeirra veruleika og framtíð. by @ungvinstri
1
5 months ago
Download
1)        Hver ert þú?
Ég heiti Stefán Oddur Hrafnsson, er 31 árs, giftur, tveggja barna faðir, og skipa annað sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri
2)        Af hverju ertu í framboði
Ég hef ekki tekið þátt áður í neinu framboði en hef lengi haft gríðarlegan áhuga og skoðanir á pólitík. Ástæðan fyrir því að ég er að bjóða mig fram er til þess að standa vörð um félagshyggju, umhverfismál og málefnum barnafjölskyldna. Mér finnst mikilvægt að Akureyri sé samfélag þar sem fjölskyldur fá raunverulegan stuðning, börn góð tækifæri og öll geti fundið öryggi og þátttöku í daglegu lífi. Ég vill leggja mitt af mörkum til að gera bæinn grænni, réttlátari og betri fyrir öll, sérstaklega þau sem hafa upplifað að þeirra rödd heyrist ekki nægilega skýrt.
3)        Áhugamál?
Ég er mikill tónlistarunnandi og spila á bassa í harðkjarna hljómsveit sem heitir Show Guilt, en við hófum starfsemi okkar af alvöru fyrir rúmu ári. Fyrsta giggið okkar var á MBS í fyrra, en í ár spiluðum við m.a. á Hellfoss og Wacken Metal Battle.
Svo fer ég og fjölskyldan mín á skíði eins oft og við getum yfir vetrartímann.
Einnig hef ég gríðarlega gaman af ýmsum íþróttum, og þá sérstaklega handbolta.
4)        Hvað gerir þú?
Ég er að ljúka M.Ed. gráðu í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri. 
5)        Hvað ætlar þú að gera fyrir ungt fólk náir þú kjöri
Það er margt sem við í VG á Akureyri viljum gera sem myndi hafa jákvæð áhrif á ungmenni. Fyrst og fremst viljum við leggja áherslu á óhagnaðardrifin húsnæði, húsnæði á að vera fyrir fólk en ekki fjárfesta.  Við viljum nýtt leiðarkerfi fyrir strætó svo að fleiri geti nýtt sér almenningssamgöngur. Við viljum lengja opnunartíma sundlaugarinnar svo að hún verði alvöru valkostur fyrir ungmenni að hittast um kvöld og njóta félagsskaps, sem og endurskoða ákvörðun fyrri bæjarstjórnar með félagsmiðstöðvar. Það er margt fleira sem hægt er að nefna, en fyrst og fremst er bara að muna hvað VG stendur fyrir, félagshyggju og náttúruvernd. Sveitarfélag er samfélag, ekki fyrirtæki. by @ungvinstri
0
5 months ago
Download
1) Hver ert þú?
Ég er viðkvæm tilfinningavera, elsta systkynið af fimm og einhleypur. Ég er félagshyggjumaður eins og hann afi minn. Annars frekar venjulegur nema hvað ég tala of hátt og klæði mig frekar undarlega.
2) Af hverju ertu í framboði?
Mér finnst spennandi tilhugsun að Kópavogur fái vinstrafólk aftur í meirihlutann og vil hjálpa til með það. Svo er ég líka mjög valdagráðugur og stjórnsamur.
3) Áhugamál?
Ég hef áhuga á eldamennsku, ókeypis kvikmyndum á netinu, ferðalögum og að koma almennt til gagns.
4) Hvað gerir þú?
Fullt.
5) Hvað ætlar þú að gera fyrir ungt fólk náir þú kjöri?
Ég myndi leyfa verkföll í vinnuskólanum. Svo væri fínt ef Kópavogur hefði meiri/betri æfingaraðstöðu fyrir upprennandi hljómsveitir og listamenn. Svo þarf að lengja opnunartíma sundlauga. Og fólk þarf þak yfir hausinn á sér. Og bíó í Hamraborg. Og kór í alla grunnskólana. Að lokum - ef ungmennaráðið kæmi með einhverjar pælingar þá myndi ég hlýða þeim í blindni. by @ungvinstri
4
5 months ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up