Instagram story viewer> @hafnarborg> Posts
3.7K
followers
1250
following
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar
The Hafnarfjörður Centre of Culture and Fine Art
Aðgangur ókeypis
Free entry
POSTS STORIES REELS TAGGED
Download All
Í dag, laugardaginn 19. september kl. 15-17, höldum við upp á útgáfu bókarinnar Bjarmaband: Frosti Fjalar í Hafnarborg. Bókin er gefin út í tengslum við samnefnda sýningu og birtir úrval verka Frosta Fjalars ásamt ljósmyndum og textum sem varpa ljósi á myndlist hans og feril.

Útgefendur eru Ásdís Spanó og Kristín Ásta Kristinsdóttir, sem skrifuðu texta ásamt Aðalsteini Ingólfssyni. Ljósmyndir eru eftir Kristínu Ástu Kristinsdóttur og hönnun og umbrot annaðist Helga Gerður Magnúsdóttir. Útgáfan er styrkt af Myndlistarsjóði og Hafnarborg.

Þá verður bókin seld á sérstöku kynningarverði í tilefni dagsins.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

---

Today, Saturday September 19th from 3-5 p.m., we celebrate the publication of Bjarmaband: Frosti Fjalar at Hafnarborg. Published in connection with the exhibition of the same name, the book presents a selection of works by Frosti Fjalar alongside photographs and texts that shed light on his art and career.

The book is published by Ásdís Spanó and Kristín Ásta Kristinsdóttir, who contributed texts alongside Aðalsteinn Ingólfsson. It features photographs by Kristín Ásta Kristinsdóttir, with design and layout by Helga Gerður Magnúsdóttir. The publication is supported by the Icelandic Visual Arts Fund and Hafnarborg.

The book will also be available at a special price for the occasion.

Free entry – everyone welcome. by @hafnarborg
0
21 days ago
Download
Síðdegistónar hefjast á ný og fyrstu flytjendur haustsins eru komnir í hús til að æfa fyrir tónleikana síðar í dag kl. 18.

Þá mun Rebekka Blöndal koma fram ásamt Andrési Þór á gítar og Þorgrími Jónssyni á kontrabassa. Á efnisskránni verður fjölbreytt úrval laga eftir Rebekku, bæði eldri verk og nýrra efni, þar á meðal lög af nýútkominni plötu hennar, Kannski.

Síðdegistónar í haust
18. september: Tríó Rebekku Blöndal
16. október: Kjalar Kollmar
13. nóvember: Björn Thoroddsen og Andrés Þór
4. desember: Tríó Sigrúnar Erlu Grétarsdóttur

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

---

Our Afternoon Concerts return today and the first performers of the season have arrived at Hafnarborg to rehearse for the concert later today at 6 p.m.

Rebekka Blöndal will perform with Andrés Þór on guitar and Þorgrímur Jónsson on double bass. The programme will feature a varied selection of Rebekka’s music, both old and new, including songs from her recently released album, Kannski.

Upcoming Afternoon Concerts
September 18th: Rebekka Blöndal Trio
October 16th: Kjalar Kollmar
November 13th: Björn Thoroddsen and Andrés Þór
December 4th: Sigrún Erla Grétarsdóttir Trio

Free entry – everyone welcome. by @hafnarborg
0
22 days ago
Download
Á morgun, sunnudaginn 13. september kl. 11:28, opnar Hafnarborg fyrr en venjulega í tengslum við verk Daníels Ágústs Ágústssonar, 11:28-15:32 _ 13.09.26, sem er hluti af haustsýningu safnsins spássíunni.

Verkið tekur mið af sólarljósinu sem skín inn um hringlaga gluggann á gafli Hafnarborgar. Daníel hefur rakið feril ljóssins eins og það streymir inn um gluggann á þessum tiltekna degi, 13. september, frá kl. 11:28 til 15:32.

Í verkinu beinir hann augum gesta þannig að glugganum og birtunni, að þessu síbreytilega fyrirbæri sem færist um rýmið frá degi til dags. Þá gefst tilefni til að staldra við, fylgjast með birtunni og veita því athygli hvernig hún færist um rýmið á sínum eigin hraða.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

--- 

Tomorrow, Sunday September 13th at 11:28 a.m., Hafnarborg will open earlier than usual in connection with Daníel Ágúst Ágústsson’s work 11:28-15:32 _ 13.09.26, presented as part of the museum’s Autumn Exhibition, margins.

The work takes its cue from the sunlight that falls through the circular window in Hafnarborg’s main gallery. Daníel has traced the path of the light as it enters through the window on this particular day, September 13th, from 11:28 a.m. to 3:32 p.m.

In the work, he thus directs visitors’ attention to the window and to the light, to this constantly changing phenomenon as it moves through the space from day to day. In this way, visitors are invited to pause, follow the light and pay attention to how it moves through the space at its own pace.

Free entry – everyone welcome. by @hafnarborg
0
a month ago
Download
Á sýningunni Bjarmabandi í Hafnarborg getur að líta úrval verka eftir Frosta Fjalar (1936-2026), listamann sem um áratugaskeið vann að list sinni í einrúmi og byggði upp umfangsmikið safn verka.

Verk Frosta eru geómetrísk að upplagi, þar sem lóðréttar og láréttar línur, litafletir og áferð skapa kvika hreyfingu og innri hrynjandi. Á löngum ferli mótaðist myndmál hans af næmu formskyni, agaðri myndbyggingu og sterkri tilfinningu fyrir litum.

Sýningarstjóri er Ásdís Spanó.

Ókeypis aðgangur – verið öll velkomin.

---

The exhibition Bjarmaband at Hafnarborg presents a selection of works by Frosti Fjalar (1936-2026), an artist who pursued his practice in solitude for several decades and built up an extensive body of work.

Frosti’s works are rooted in geometry, where vertical and horizontal lines, fields of colour and texture create a sense of movement and internal rhythm. Across his long career, his visual language was shaped by a refined sense of form, disciplined composition and a profound sensitivity to colour.

The exhibition is curated by Ásdís Spanó.

Free entry – everyone welcome. by @hafnarborg
0
a month ago
Download
Á opnun haustsýningar Hafnarborgar, spássíunnar, síðasta fimmtudag, fór fram gjörningur í tengslum við verk Gabi Schillig, mjúkar eftirmyndir / bergmál rýmis, þar sem samband líkama, efnis og rýmis var kannað.

Flytjendurnir fengu mikið frelsi til að nálgast verkið á eigin forsendum og finna eigin tengingu við efniviðinn, en samspil þeirra við verk Gabi opnaði jafnframt á tengsl við önnur verk og sýningarrýmið sjálft.

Í verkum sínum veltir Gabi fyrir sér því hvernig líkaminn og rýmið móta hvort annað og vinnur meðal annars með hugmyndina um mjúkan arkitektúr, þar sem mýkt verður leið til að endurmeta hugmyndir um samvist og umhyggju.

Flytjendur voru Íris Ásmundar og Sara Lind Guðnadóttir. Ljósmyndir tók Kristín S. Pétursdóttir.

spássían stendur yfir í Hafnarborg til 1. nóvember – verið öll velkomin.

At the opening of Hafnarborg’s Autumn Exhibition, margins, last Thursday, a performance took place in connection with Gabi Schillig’s work soft doubles / spatial echoes, exploring the relationship between body, material and space.

The performers were given the freedom to approach the work on their own terms and find their own connection to the material, while their interaction with Gabi’s work also opened up connections to other works and to the exhibition space itself.

In her practice, Gabi considers how body and space constitute each other and works with the notion of soft architecture, where softness becomes a means of reconsidering ideas of cohabitation and care.

The performers were Íris Ásmundar and Sara Lind Guðnadóttir. Photographs by Kristín S. Pétursdóttir.

margins remains on view at Hafnarborg through November 1st – everyone welcome. by @hafnarborg
2
a month ago
Download
Vinsamlegast athugið að frestur til að senda inn tillögur að haustsýningu Hafnarborgar 2027 rennur út nú á sunnudaginn, 6. september.

Við minnum því sýningarstjóra og þau sem hafa áhuga á sýningarstjórn á að enn er hægt að senda okkur hugmynd að sýningu og taka þátt í opnu kalli Hafnarborgar.

Nánari upplýsingar um umsóknarferlið má finna á heimasíðunni okkar – www.hafnarborg.is.

---

Please note that the deadline for submitting proposals for Hafnarborg’s Autumn Exhibition 2027 is this Sunday, September 6th.

We would therefore like to remind curators, as well as those interested in curatorial practice, that there is still time to submit an exhibition idea and take part in Hafnarborg’s open call.

Further information about the application process can be found on our website – www.hafnarborg.is. by @hafnarborg
0
a month ago
Download
Takk kærlega fyrir komuna á opnun sýninganna spássíunnar, haustsýningar Hafnarborgar 2026, og Bjarmabands síðasta fimmtudagskvöld.

Sýningarnar munu standa yfir í safninu til 1. nóvember og hlökkum við til að taka á móti ykkur í Hafnarborg, þar sem þátttakendur haustsýningarinnar takast annars vegar á við sýningarrýmið og gestum gefst hins vegar tækifæri til að kynnast heillandi taktheimi Frosta Fjalars.

Ljósmyndir tók Kristín S. Pétursdóttir.

Ókeypis aðgangur – verið öll velkomin.

---

A big thank you to everyone who joined us for the opening of margins, Hafnarborg’s Autumn Exhibition 2026, and Bjarmaband last Thursday evening.

The exhibitions will remain on view through November 1st and we look forward to welcoming you at Hafnarborg, where the participants in the Autumn Exhibition take on the exhibition space, while Bjarmaband opens onto Frosti Fjalar’s captivating rhythmic world.

Photographs by Kristín S. Pétursdóttir.

Free entry – everyone welcome. by @hafnarborg
0
a month ago
Download
Á morgun, þriðjudaginn 1. september kl. 12, bjóðum við ykkur velkomin á fyrstu hádegistónleika nýs misseris í Hafnarborg en að þessu sinni verður Hildigunnur Einarsdóttir, mezzósópran, gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar.

Þá er yfirskrift tónleikanna „Náttúran og gráturinn“ en saman munu Hildigunnur og Antonía flytja aríur úr óperum eftir Händel, Gluck og Saint-Saëns.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 (húsið opnar kl. 11:30).

Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.

---

Tomorrow, Tuesday September 1st, we invite you to the first Midday Concert of the new season at Hafnarborg, where mezzo-soprano Hildigunnur Einarsdóttir will perform alongside Antonía Hevesi, pianist and artistic director of the concert series.

Under the title “Nature and Tears”, Hildigunnur and Antonía will perform arias from operas by Handel, Gluck and Saint-Saëns.

The concert starts at 12 p.m. (doors open at 11:30 a.m.).

Free entry – see you at Hafnarborg. by @hafnarborg
0
a month ago
Download
Sýningin Bjarmaband opnar í dag í Sverrissal Hafnarborgar en sýningin veitir innsýn í ævistarf listamannsins Frosta Fjalars sem hefur verið flestum hulið, þar til nú. Frosti hét áður Jakob Jónsson og er ferill hans sérstakur að því leyti að eftir að hafa verið virkur þátttakandi í íslensku myndlistarlífi á áttunda og níunda áratugnum þá dró hann sig alveg í hlé. Hann hélt þó áfram að skapa listaverk í einrúmi og byggði upp mikið safn voldugra verka. 

Sýningarstjóri Bjarmabands er Ásdís Spanó en hún og Kristín Ásta Kristinsdóttir ljósmyndari kynntust Frosta fyrir tilviljun fyrir þremur árum og tókust með þeim góð kynni. Ítarlegt viðtal við Ásdísi má finna á menningarsíðum Morgunblaðsins í dag, fimmtudag.

📸 Kristín Ásta Kristinsdóttir by @hafnarborg
2
a month ago
Download
Á morgun, fimmtudaginn 27. ágúst kl. 20, bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á opnun sýninganna spássíunnar, haustsýningar Hafnarborgar 2026, í sýningarstjórn Katrínar Bjargar Gunnarsdóttur og Úlfs Braga Einarssonar, og Bjarmabands, þar sem sýnd eru verk eftir Frosta Fjalar í sýningarstjórn Ásdísar Spanó.

spássían beinir sjónum að sýningarrýminu sjálfu og hlutverki þess í sýningargerð – að þeim möguleikum sem búa í tóminu sem er í raun aldrei tómt. Hér fá minna áberandi fletir safnrýmisins aukið vægi og verður spássían sjálf þannig að viðfangsefni sýningarinnar, bæði sem raunverulegt rými og hugmynd. Listamennirnir eru Daníel Ágúst Ágústsson, Gabi Schillig, Hildur Elísa Jónsdóttir, Iyo Hasegawa, Joe Keys og Shiori Ono.

Á sýningunni Bjarmabandi getur svo að líta úrval verka eftir Frosta Fjalar (1936-2026), listamann sem um áratugaskeið vann að list sinni í einrúmi. Þá mótaðist myndmál hans af næmu formskyni, agaðri myndbyggingu og sterkri tilfinningu fyrir litum.

Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.

---

Tomorrow, Thursday August 27th at 8 p.m., we invite you to the opening of margins, Hafnarborg’s Autumn Exhibition 2026, curated by Katrín Björg Gunnarsdóttir and Úlfur Bragi Einarsson, and Bjarmaband, featuring works by Frosti Fjalar and curated by Ásdís Spanó.

margins turns its attention to the exhibition space itself and its role in exhibition-making – to the possibilities that reside in the void that is never truly empty. Here, less prominent surfaces of the museum space are brought into focus, making the margins themselves the subject of the exhibition, both as an actual site and as an idea. The participating artists are Daníel Ágúst Ágústsson, Gabi Schillig, Hildur Elísa Jónsdóttir, Iyo Hasegawa, Joe Keys and Shiori Ono.

At Bjarmaband, a selection of works by Frosti Fjalar (1936-2026) is brought into view. Frosti pursued his practice in solitude for several decades, developing a visual language shaped by a refined sense of form, disciplined composition and a profound sensitivity to colour.

Free entry – see you at Hafnarborg. by @hafnarborg
0
a month ago
Download
Sumarsýningum Hafnarborgar er nú lokið og fram undan tekur við uppsetning næstu sýninga hér hjá okkur í safninu.

Í millitíðinni viljum við minna á að enn er hægt að senda inn tillögur að haustsýningu Hafnarborgar 2027.

Við hvetjum sýningarstjóra og þau sem hafa áhuga á sýningarstjórn til að kynna sér opna kallið og senda okkur sína hugmynd.

Nánari upplýsingar um opna kallið má finna á heimasíðunni okkar – www.hafnarborg.is.

---

Hafnarborg’s summer exhibitions have now come to an end and preparations are underway for the museum’s upcoming exhibitions.

In the meantime, we would like to remind you that we are still accepting proposals for Hafnarborg’s Autumn Exhibition 2027.

We encourage curators, as well as those interested in curatorial practice, to take a look at the open call and send us their ideas.

Further information about the open call can be found on our website – www.hafnarborg.is. by @hafnarborg
0
2 months ago
Download
Síðasta sýningarhelgi er runnin upp í Hafnarborg en sýningarnar Stór heimur eftir Helga Þorgils Friðjónsson og May Show Signs of Minor Defects eftir Svein Fannar Jóhannsson eru opnar til og með 16. ágúst.

Í dag, laugardaginn 15. ágúst kl. 14, tekur Helgi Þorgils Friðjónsson á móti gestum og ræðir um sýningu sína, Stóran heim.

Á morgun, sunnudaginn 16. ágúst kl. 14, veitir Daría Sól Andrews, sýningarstjóri,  gestum svo innsýn í sýningu Sveins Fannars Jóhannssonar.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

---

The final exhibition weekend has begun at Hafnarborg, with Great World by Helgi Þorgils Friðjónsson and May Show Signs of Minor Defects by Svein Fannar Jóhannsson open through August 16th.

Today, Saturday August 15th at 2 p.m., Helgi Þorgils Friðjónsson will welcome guests for a talk on his exhibition, Great World.

Tomorrow, Sunday August 16th at 2 p.m., curator Daría Sól Andrews will offer guests insight into Svein Fannar Jóhannsson’s exhibition.

Free entry – everyone welcome. by @hafnarborg
0
2 months ago
Download
×

Download all media on this page

Photos Videos
back to up