Instagram story viewer> @helgadiop> Posts
11.3K
followers
1055
following
Íslensk með afrískt hjarta🫶🏽
Ferðasjúk 12 barna mamma
Þróunarfræðingur og stofnandi @amsis_island
🇮🇸🇸🇳
POSTS STORIES REELS TAGGED
Hvað er ég að fara að gera í Gíneu-Bissá?
@amsis_island www.amsis.is by @helgadiop
14
a month ago
Download
Þegar ég bauð manninum mínum upp á tacos í Senegal vildi hann ekki borða. Sagði að þetta væri ekki matur 😂🌮
Hann má alveg skipta um skoðun en ég má líka núa því honum um nasir að ég hafi haft rétt fyrir mér. #eltacotruck #fjölmenning taken in Grímsnes- og Grafningshreppur by @helgadiop
15
a month ago
Download
Við tölum svo oft um hvað Afríka geti lært af okkur. En hvað getum við lært af Afríku? 🌍
Eftir öll árin mín í Senegal hef eg komist að því að við erum alls ekki með öll svörin hér á norðurhjaranum.
Við erum góð í skipulagi, sjálfstæði og skilvirkni. En stundum held ég að við höfum orðið svo upptekin af því að redda okkur sjálf og komast yfir verkefnalistann að við gleymum aðeins fólkinu okkar á leiðinni.
Að virða reynslu þeirra sem eldri eru. Að gefa sér tíma fyrir fólkið sitt. Að finna tilefni til að fagna. Að deila því sem maður á. Að muna að við tilheyrum samfélagi, ekki bara okkur sjálfum.
Það er mjög margt sem ég myndi gjarnan vilja flytja með mér frá Senegal til Íslands 🇸🇳❤️🇮🇸
Hvað finnst þér að við Íslendingar gætum lært af öðrum menningarheimum?
#fjölmenning #senegal taken in Senegal by @helgadiop
10
a month ago
Download
Sem betur fer snúast kosningarnar á morgun ekki um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið, heldur hvort hefja eigi viðræður. Klárum viðræðurnar, sjáum hvað raunverulega stendur Íslandi til boða og tökum svo upplýsta ákvörðun um hvort við viljum inn eða ekki. #játilaðsjá taken in Grímsnes- og Grafningshreppur by @helgadiop
5
2 months ago
Download
Síðasta spurningamyndbandið 🫶🏽 Krakkarnir alveg með þetta á hreinu sem fyrr ☀️#fjölmenning taken in Grímsnes- og Grafningshreppur by @helgadiop
7
2 months ago
Download
Segðu mér að þú sért í fjölmenningarfjölskyldu, án þess að segja mér að þú sért í fjölmenningarfjölskyldu. 
Vegabréfaskúffa sem lítur út eins og útibú hjá Útlendingastofnun, tvær heilagar bækur sem eru sáttari saman en flestir ættingjar í jólaboði og nóg af ferðabókum til að halda að við séum annaðhvort landkönnuðir eða í afneitun um að við eigum bara eitt líf. #fjölmenning by @helgadiop
6
2 months ago
Download
Það fylgir engin handbók með því að giftast manneskju frá allt öðrum menningarheimi 😅

Ég hélt að stóru málin yrðu tungumál, trú eða ólíkar hefðir en það reyndist ekki raunin.

Hvað „fjölskylda“ þýðir. Hvernig maður rífst. Hvernig maður sýnir virðingu. Hvað telst sjálfsagt. Hver má skipta sér af hverju 😂

Með tímanum lærir maður ekki bara á menningu hins. Maður fer líka að sjá sína eigin menningu með allt öðrum augum og einhvers staðar á leiðinni verður til eitthvað nýtt, ekki alveg íslenskt, ekki alveg senegalskt, heldur bara okkar. 🤍🇮🇸🇸🇳 by @helgadiop
6
2 months ago
Download
Enn önnur vikuinnkaupin 😩 Fyrsta vika mánaðarins er alltaf dýrust, þessi kostaði heilar 111.092 krónur!!! #Vikuinnkaupin taken in Grímsnes- og Grafningshreppur by @helgadiop
10
2 months ago
Download
Stuttur göngutúr, BARNLAUS, í íslensku sólinni er allt sem þarf til að bjarga deginum. Hver tengir? taken in Grímsnes- og Grafningshreppur by @helgadiop
10
2 months ago
Download
3. hluti spurningakeppni milli mömmu og pabba 🫶🏽 #fjölmenning taken in Grímsnes- og Grafningshreppur by @helgadiop
0
3 months ago
Download
Flestir sem neyðast á flótta hefðu kosið að vera heima hjá sér, með fjölskyldunni sinni, vinum, vinnunni og samfélaginu sem þeir þekkja. Enginn yfirgefur heimili sitt, eigur og framtíð án ástæðu.

Þegar fólk flýr er það oft vegna stríðs, ofsókna eða annars ofbeldis. Þá er flóttinn ekki val heldur nauðsyn.

Að taka á móti flóttafólki snýst ekki bara um að veita skjól. Það snýst um að vernda mannlega reisn og réttinn til að lifa við öryggi, rétt sem við myndum öll vilja njóta ef við værum í sömu aðstæðum.

Kannski skiptir mestu máli að spyrja ekki: „Af hverju koma þau hingað?“ heldur: „Hvað myndi ég vona að önnur lönd gerðu ef ég eða fjölskyldan mín þyrftum að flýja?“

🤍 Samkennd kostar lítið en getur skipt sköpum. by @helgadiop
5
3 months ago
Download
Ég reyndi að taka sæta mynd af okkur gömlu. Börnin voru ekki einu sinni í mynd en ná samt að minna á sig ALLS STAÐAR! 🤣

Ég sé mun fleiri en 5 atriði 😩 taken in Grímsnes- og Grafningshreppur by @helgadiop
5
3 months ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up