Instagram story viewer> @njardvikfc> Posts
6.1K
followers
918
following
Opinber Instagram síða Knattspyrnudeildar Njarðvíkur | Official Instagram account of Njarðvík football club
POSTS STORIES REELS TAGGED
Download All
Anita Bergrán Eyjólfsdóttir gengur til liðs við Grindavík/Njarðvík! 🤝✍️

Anita gengur til liðs við okkur frá nágrönnum okkar í Keflavík og skrifar undir samning við Grindavík/Njarðvík út árið 2029, en samningurinn tekur formlega gildi þann 01.01.2027.

Anita er öflugur miðjumaður sem er fædd árið 2006, en á þrátt fyrir ungan aldur 90 meistaraflokks leiki á vegum KSÍ að baki ýmist í Bestu deildinni eða Lengjudeildinni þar sem hún lék 16 leiki með Keflavík á liðinni leiktíð og skoraði þar 3 mörk.

Við bjóðum Anitu hjartanlega velkomna til Grindavíkur/Njarðvíkur! 🩷💛💚 by @njardvikfc
0
4 days ago
Download
Sá leikjahæsti framlengir!

Arnar Helgi Magnússon hefur framlengt samning sínum við Knattspyrnudeild Njarðvíkur út árið 2028.
Arnar sem er eins og áður sagði leikjahæsti leikmaður í sögu Njarðvíkur með 282 leiki á vegum KSÍ, og er á leið í sitt tólfta tímabil með félaginu, en hann gekk til liðs við okkur frá uppeldisfélagi sínu FH árið 2016 þegar hann kláraði sinn yngri flokka feril.

Arnar lék alls 30 leiki árið 2026 og skoraði 3 mörk, en alls eru mörkin 21 hjá Arnari í þeim 282 leikjum sem hann hefur spilað í.

Það er virkilega ánægjulegar fréttir að Arnar Helgi sem hefur verið máttastólpi í uppgangi Knattspyrnudeildar síðustu ár framlengi veru sína í Njarðvíkunum enn frekar enda frábær liðsmaður innan sem utan vallar og hefur reynst Njarðvíkurliðinu vel.

Gefum Arnari sjálfum orðið:

„Það kom ekki annað til greina en að halda áfram hjá Njarðvík!
Klúbburinn er búinn að stækka mikið seinustu ár og búið að vera geggjað að vera hluti af því. 
Erum búnir að vera nálægt því að komast upp seinustu ár og súrt að hafa ekki náð að klára það núna. 
Við erum með frábært þjálfarateymi og sterkan hóp og kominn tími á að taka skrefið upp í næstu deild, og ég ætla mér að sjálfsögðu að vera hluti af því!“

Við óskum Arnari til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að sjá hann í baráttunni að nýju í vetur 💚 taken in Njarðvík by @njardvikfc
0
6 days ago
Download
Markalaust jafntefli í Garðabænum í kvöld

Okkar stelpur skoruðu 2 mörk í kvöld sem voru dæmd af vegna rangstöðu, og þá áttum við m.a. sláarskot á 90 mínútu en inn vildi boltinn ekki og niðurstaðan markalaust jafntefli á Samsungvellinum í kvöld.

Áfram höldum við að safna stigum í pokann góða í deild þeirra Bestu og erum komin með 26 stig núna þegar tvær umferðir eru eftir.

Nú tekur við landsleikjahlé en stelpurnar mæta aftur til leiks þann 18. október í heimaleik gegn ÍBV áður en við endum tímabilið úti gegn Þrótti R. þann 23. okt.

Áfram Grindavík/Njarðvík! by @njardvikfc
1
6 days ago
Download
Svona stillir Gylfi liðinu upp í dag gegn Stjörnunni í síðasta leik fyrir landsleikjahlé

Leikurinn fer fram á Samsungvellinum í Garðabæ svo það er enn nægur tími til að bruna af stað á völlinn, en annars er leikurinn í beinni á SÝN Sport Ísland 3

Áfram Grindavík/Njarðvík! 🩷💛💚 by @njardvikfc
1
6 days ago
Download
LEIKDAGUR 

🆚 Stjarnan
🕐 18:00
🏟️ Samsungvöllurinn
🗓️ Föstudagur, 2. október
🏆 Besta deildin - Efri hluti

Útileikur í Garðabænum gegn Stjörnunni í kvöld á Samsungvellinum hjá okkar konum.
Hvetjum okkar fólk til að mæta og styðja stelpurnar!

Áfram Grindavík/Njarðvík! 🩷💛💚 by @njardvikfc
0
7 days ago
Download
Útileikur gegn Stjörnunni á föstudag!

Stelpurnar okkar gerðu virkilega vel í síðasta leik og sigruðu lið FH-inga.
Nú fara þær í heimsókn í Garðabæinn og mæta liði Stjörnunnar í efri helming Bestu deildarinnar.
Liðin eru í 5. og 6. sæti deildarinnar fyrir leikin með 26 og 25 stig, svo von er á hörkuslag.

Leikurinn er sá síðasti fyrir landsleikjahlé og hvetjum við okkar fólk að mæta á völlinn og styðja stelpurnar!

Áfram Grindavík/Njarðvík! 🩷💛💚 by @njardvikfc
1
9 days ago
Download
Sigurjón Már Markússon kveður Njarðvík!

Sigurjón Már Markússon og Knattspyrnudeild Njarðvíkur hafa samið um starfslok á samningi sín á milli.

Sigurjón gekk til liðs við Njarðvíkurliðið frá Haukum fyrir tímabilið 2022 og hefur leikið með okkur allar götur síðan.
Alls hefur Sigurjón Már sem leikur iðulega stöðu hafsents spilað 140 leiki fyrir Ungmennafélagið og skorað í þeim 4 mörk.
Fór hann með okkur upp um deild árið 2022 og hefur verið fastamaður í liðinu frá komu sinni – liði sem hefur m.a. á þeim tíma náð besta árangri í sögu félagsins í deildarkeppni.

Gefum Sigurjóni sjálfum orðið:
Takk fyrir mig, Njarðvík!

Eftir fimm frábær ár er komið að því að kveðja. Ég er ótrúlega þakklátur fyrir tímann hjá félaginu, allar stundirnar, reynsluna og ekki síst fólkið sem ég hef kynnst og þá góðu vini sem ég tek með mér héðan.
Ég er stoltur af því sem við höfum áorkað saman og þakklátur fyrir að hafa fengið að vera hluti af þessari vegferð.

Takk fyrir allt, Njarðvík 💚

Knattspyrnudeildin vill sömuleiðis koma þökkum til Sigurjóns fyrir sinn tíma hjá félaginu, en hann hefur staðið sig með prýði innan sem utan vallar og um leið óskum við honum og fjölskyldu hans góðs gengis í næstu verkefnum 💚 taken in Njarðvík by @njardvikfc
0
9 days ago
Download
Santa Sanija Vuškāne valin í lettneska landsliðið 🇱🇻

Santa er tvítugur sóknarmaður sem gekk til liðs við Grindavík/Njarðvík í sumarglugganum og hefur spilað 10 leiki með félaginu og skorað í þeim 3 mörk.
Santa gerði samning út árið 2028 við Grindavík/Njarðvík

Santa hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 19 A landsleiki með Lettlandi og skorað í þeim eitt mark, auk þess sem hún á fjölda yngri landsleikja fyrir Lettland.
Hún hefur verið valin í æfingabúðir landsliðsins og mun leika æfingaleik með liðinu gegn Frakklandi í þessum landsleikjaglugga.

Við óskum Santa til hamingju með valið í landsliðið og óskum henni góðs gengis í verkefninu framundan! 🩷 by @njardvikfc
5
9 days ago
Download
Tinna Hrönn kom Grindavík/Njarðvík yfir í sterkum sigri á FH! ⚽️🤍💖 #bestadeildin taken in Iceland by @njardvikfc
1
11 days ago
Download
Frábær 3-2 sigur á sterku liði FH á JBÓ vellinum í dag!

Tinna Hrönn Einarsdóttir opnaði markareikning okkar með þrumu skoti á 43 mínútu og staðan 1-0 í hálfleik.
Emma Nicole Phillips fór síðan mikinn í byrjun seinni hálfleik og setti tvö mörk á 48. og 49. mínútu.
FH-ingar enduðu á að minnka muninn í 3-2 en þar við sat og frábær frammistaða og frábær sigur hjá okkar stelpum staðreynd!

Við erum því komin með 25 stig í deild þeirra Bestu.
Næsti leikur okkar stelpna er á föstudaginn, 2. október í Garðabæ gegn Stjörnunni áður en það tekur við tveggja vikna landsleikjahlé fyrir lokasprett Bestu deildarinnar.

Áfram Grindavík/Njarðvík! 🩷💛💚 by @njardvikfc
0
11 days ago
Download
Svona stillir Gylfi liðinu upp í dag gegn FH.

JBÓ Völlurinn klukkan 14:00 – hvetjum alla til að mæta á völlinn!

Áfram Grindavík/Njarðvík! 🩷💛💚 by @njardvikfc
1
12 days ago
Download
LEIKDAGUR 

🆚 FH
🕐 14:00
🏟️ JBÓ Völlurinn
🗓️ Sunnudagur, 27. september
🏆 Besta deildin - Efri hluti

Næst síðasti heimaleikur stelpnanna okkar í Bestu deildinni í ár gegn toppliði FH klukkan 14:00 í dag.
Hvetjum okkar fólk til að mæta og styðja stelpurnar!

Áfram Grindavík/Njarðvík! 🩷💛💚 by @njardvikfc
0
12 days ago
Download
×

Download all media on this page

Photos Videos
back to up