Instagram story viewer> @njardvikfc> Tagged
6.1K
followers
916
following
Opinber Instagram síða Knattspyrnudeildar Njarðvíkur | Official Instagram account of Njarðvík football club
POSTS STORIES REELS TAGGED
Goðsögn kveður sviðið! 👑

Natasha Anasi-Erlingsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir glæsilegan feril og okkur hjá Grindavík/Njarðvík finnst mikilvægt að staldra við og heiðra hana fyrir glæsilegan feril.
Natasha skilur eftir sig stór spor í íslenskri kvenna knattspyrnu en hún kom fyrst til Íslands árið 2014 eftir háskólaferil hjá Duke.

Natasha hefur ekki aðeins verið öflugur leikmaður inni á vellinum heldur einnig mikill leiðtogi og fyrirmynd. 
Natasha hefur leikið vel yfir 200 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ og skorað í þeim 68 mörk. 
Hún á einnig 9 A landsleiki með íslenska landsliðinu og skorað þar 1 mark.
Á Íslandi hefur hún leikið með ÍBV, Keflavík, Breiðablik, Val og nú Grindavík/Njarðvík auk þess sem hún hefur leikið með Brann í Noregi.

Fyrir leik Grindavíkur/Njarðvíkur og ÍBV í dag voru það þeir Jón Óli Daníelsson þjálfari ÍBV og Gylfi Tryggvason sem veittu henni heiðursgjöf en Jón Óli var einmitt þjálfari ÍBV þegar Natasha hóf sinn atvinnumannaferiI með IBV sumarið 2014, og Gylfi að sjálfsögðu núverandi þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur.

Fyrr í dag tilkynnti Natasha þá að hún væri ólétt og óskum við að sjálfsögðu henni og fjölskyldu innilega til hamingju með það!
Kæra Natasha — fyrir hönd Grindavíkur/ Njarðvíkur óskum við þér til hamingju með glæsilegan feril! 🩷💛💚
18
back to up