Instagram story viewer> @sara_odds> Posts
5.1K
followers
1935
following
❗️MASTER COACH⠀
♦️SHAMANIC PATH⠀⠀
♥️YOUR LIGHT DOESN'T CAST SHADOW ON ME
POSTS STORIES REELS TAGGED
Download All
Besta vinkona mín, ferðafélagi, skugginn minn til 15 ára kvaddi í gær. Engin orð ná yfir sorgina í hjartanu mínu, tómið sem elsku Dimma skilur eftir sig. Hún var besti hundur í heimi 💔

Þessi djúpa tenging verður til á langri hundaævi, finnst mér núna allt of stuttur tími, svo dýrmæt og marglaga tenging. Dimma var festan mín, öryggi og fyrirsjáanleiki þegar lífið virtist ekki þreytast á að senda mér krefjandi verkefni. Dimma þekkti öll mín leyndarmál, sorg og bresti. Dimma þekkti líka mína stærstu gleði, hamingu, þrá og ást ❤️ ⠀
⠀
Ég er svo óendanlega þakklát fyrir að hún hafi fylgt mér og okkur inn í nýjan kafla, fengið að verða gömul í nýja húsinu okkar og sjá að núna er mamma hennar komin í öruggt skjól. Hún kvaddi þessa tilvist í fanginu mínu, í herberginu okkar, alveg slök, í trausti og æðrulaus án alls viðnáms með uppáhalds fólkið sitt hjá sér 🤍 ofboðslega fögur friðsæl stund en almáttugur hvað ég sakna hennar mikið. ⠀
⠀
Takk Dimma mín ❤️ þú hefur svo sannarlega skilið eftir loppufar á hjartanu mínu og okkar sem fengum að elska þig. ⠀ by @sara_odds
40
9 months ago
Download
1 mánuður af óteljandi ást & gleði ❤️
⠀
📸 @sagasig taken in Reykjavík, Iceland by @sara_odds
2
a year ago
Download
12.07.2025 - Hjón ⠀
⠀
Orð ná skammt ❤️ ⠀
⠀
Takk líf fyrir dýrmæta tækifærið sem við varðveitum hvert andartak. ⠀
⠀
Takk allir fyrir að heiðra okkur með nærveru ykkar. 
⠀
TAKK skemmtilegu og sniðugu vinir okkar fyrir alla hjálpina, þessi stund var samsköpuð. Án ykkar væri lífið sannarlega ekki jafn litríkt. ⠀
⠀
Takk elsku @svennih @jonassigmusic @arnmundur @gthorvaldsson og @agustaosk fyrir að strá töfrum ykkar á þessa upplifun og gefa okkur það sem við elskum mest 🎶 tónaflóð.⠀

Takk elsku @sagasig 📸 takk fyrir að fanga og staðfesta töfrana á filmu í efnisheiminum sem annars væri óraunveruleg minning. ⠀
⠀
Og RISA stórt takk yndislegi @raggiagnars vinur okkar því þarf ekkert minna en leikstjóra til að stýra okkar leik-skóla 🫶🏻 ⠀
⠀
Ást okkar er handan orða ❤️ ⠀ taken in Reykjavík, Iceland by @sara_odds
25
a year ago
Download
Til hamingju með annan hring í kringum sólina stórkostlegi þú, ástin mín, Börkur minn.

Allir dagar eru ævintýri með þér, þvílíka veislan að vera við og bara hjúkket🤠
Ég get raunverulega ekki ímyndað mér betri ferðafélaga en þig. Ég elska þig ❤️ by @sara_odds
12
2 years ago
Download
Þessi fallegi maður á afmæli í dag. Vissulega ber hann af í þokka, ég meina gæjinn er náttla alveg sjúklega fallegur, það fer ekki fram hjá mér frekar en öðrum og hann er minn. Málið er hins vegar að Börkur er enn fegurri að innan ♥️ svo er hann líka sjúklega skemmtilegur, ótrúlega duglegur og skynsamur, alger prakkari, sem ég dýrka og er alltaf til í ný ævintýr með mér og ég elska hann meira í dag en í gær. Til hamingju með daginn þinn draumurinn minn. Þú ert uppáhalds manneskjan mín. by @sara_odds
13
3 years ago
Download
Að gefast upp er ekki ósigur.⠀
⠀
Að vita hvenær þú átt að hætta, taka aðra stefnu, kveðja eitruð samskipti og krefjast meira frá lífinu er ekki ósigur. Að gefast upp á einhverju sem þjónar þér ekki lengur og velja annað er mikilvægur eiginleiki, eiginleiki sigurvegara.⠀
⠀
Það er sigur að vita hvenær þú átt að gefast upp og velja annað.  Veldu þig !⠀
⠀ by @sara_odds
6
3 years ago
Download
Hægðu á þér. Taktu eftir umhverfinu, fólkinu í kringum þig. Hlustaðu án þess að svara. Skiptu út dóm fyrir skilning, auðmýkt og kærleika. Hvað getur þú bætt, nært, hlúað að í þínu nærumhverfi? Hvert er þitt framlag til samfélagsins? by @sara_odds
2
3 years ago
Download
Traust er val. Þú getur valið að treysta. 
Þú getur líka valið að treysta ekki. ⠀
⠀
Með því að treysta ekki gefur þú þeim sem særðu þig, brutu á þér eða kenndu þér að treysta ekki, vald yfir þér, þínu hjarta og þar með þinni sögu. ⠀

Með lokað hjarta gefur þú valdið þitt frá þér. Framtíð þinni.⠀
⠀
Ertu tilbúin eða tilbúinn að gefa frá þér þitt vald. Valdið yfir þér?⠀
⠀
Ekki láta fortíðina koma í veg fyrir að þú upplifir töfra lífsins. Farir á mis við tækifærin sem bíða þín.⠀
⠀
Opnaðu hjarta þitt og veldu kærleika.⠀
Opnaðu huga þinn og veldu skilning.⠀
Opnaðu huga þinn og veldu auðmýkt.⠀ 
Opnaðu huga þinn og veldu forvitni.⠀ 
Opnaðu fyrir töfrum þess ókomna.⠀ 
⠀
Taktu áhættu og treystu að ný ævintýr bíða þín, en þú þarft að leyfa þeim að koma.⠀
Veldu að treysta lífinu.⠀
⠀ by @sara_odds
2
3 years ago
Download
Hvað notum við alla daga?⠀
Hefur áhrif á alla þætti fyrirtækis?⠀
Hefur áhrif á allt starfsfólk og stjórnendur?⠀
Hefur áhrif á alla viðskiptavini og orðspor fyrirtækis?⠀
⠀
Og á 20 ára skólagöngu er þetta ekki kennt sem fag í skóla?
⠀
Svarið er SAMSKIPTI⠀
⠀
Flestir telja sig vera ágæta, jafnvel góða í samskiptum.⠀
Við gerum kröfu um að stjórnendur séu sérfræðingar í samskiptum, tileinki sér skýr og skilvirk samskipti. Að stjórnendur nái til og geti miðlað upplýsingum til fjölbreytts hóps af starfsfólki á greinagóðan máta án misskilnings og efa.⠀
Til þess þarf góða samskiptatækni. Ekki rétt?⠀
⠀
➡️Hvað eru skýr og skilvirk samskipti?⠀
➡️Er hægt að læra góð samskipti? Svarið er já.⠀
➡️Geta allir orðið sérfræðingar í samskiptum? Svarið er nei.⠀
✅Geta allir bætt sína samskiptatækni? Svarið er já og það er auðveldara en þú heldur.⠀
⠀
✅Fyrsta skrefið er að viðurkenna og horfast í augu við að stjórnendur og starfsmenn eru ekki endilega góðir í samskiptum þrátt fyrir að vera frábærir einstaklingar. Hefur ekkert með það að gera. Og fólk getur verið skemmtilegt, sniðugt og ágætt í almennum samskiptum, t.d. á kaffistofunni. Þetta er heldur ekki spurning um hvort fólk sé introvert-ar eða óframfærið. Og alls ekki dónalegt, viðskotaillt eða egó-bangsar, það er ekki hópurinn sem er til skoðunar, þó klárlega sé allt of stórt mengi.⠀
⠀
Málið er að eitt er að vera góður í almennum samskiptum gagnvart þeim sem þekkja þig og kunna að lesa þig. Hitt er að vera góður í að koma frá sér upplýsingum til ólíks hóps af fólki sem les ólíkt út úr upplýsingunum. Það er allt annað dæmi.⠀
⠀
‼️Léleg samskipti skapa óreiðu, stefnuleysi, óskýrleika, óöryggi og töpuð verðmæti.⠀
⠀
✅Á sama tíma og skýr, markviss og góð samskipti skila árangri á öllum sviðum fyrirtækis.⠀
Allt frá vellíðan starfsfólks til afkomu félags.⠀
⠀ by @sara_odds
1
3 years ago
Download
Stór hópur fólks heldur uppi stöðugri gagnrýni og aðfinnslu á umhverfi sitt.⠀ 
Í mínum huga skiptist þetta í tvo hópa.⠀ 
⠀ 
Hópur nr. 1.⠀ 
Ágætt dæmi um slíkt er Euróvisjón og PBT ofbeldið. Þetta er löngu komið út fyrir einhverja uppbyggilega eða almenna gagnrýni, án þess að fara eitthvað dýpra í það. En ég velti upp hvort vægi þessarar listsköpunar sé virkilega slíkt að hún vegi þungt á vogaskálum glötunar okkar samfélags?⠀ 
⠀ 
Hópur nr. 2.⠀ 
Laumu dómarinn, þessi sem læðir inn litlum skotum, aðfinnslum, vandlæti, minnkun og vanvirðingu á allt og ekkert í umhverfi sínu til að upphefja sjálfan sig. En á sama tíma telur sig víðsýnan og opinn einstakling.⠀ 
⠀ 
Hvaðan kemur þessi óseðjandi þörf fyrir að úthúða fólki, leynt eða ljóst, sem samræmast ekki þínum smekk eða skoðun? Væri lífið fullkomið ef þessar hryllilegu breytur væru ekki partur af tilvist þinni? Hvað gefur fólki skýrt og óskilyrt skotleyfi til að ráðast á persónu, eiginleika, smekk, stöðu, kyn eða sköpun annarra?⠀ 
⠀ 
Ég held að fólki líði hreinlega bara ekki nógu vel. Að gremjan, heiftin og hatrið sem kemur þarna upp á yfirborð sé ekkert annan en gömul sár sem aldrei fengu að gróa.
Og geri mér fyllilega grein fyrir að samfélagið er ekki fullkomið en verður það bætt með þessari aðferð?⠀ 
⠀ 
➡️Ég held að við ættum að byrja á okkur sjálfum. Þú ert fordæmið fyrir nær samfélag þitt. Við erum það öll.⠀ 
⠀ 
➡️Hvernig þú talar og skrifar um aðra er þitt innlegg inn í framtíð barna okkar.
Horfðu í spegilinn og segðu það sem þú segir um aðra upphátt og sjáðu hvernig þér líður. Er þetta fallegt, uppbyggilegt, líklegt til árangurs?⠀ 
⠀ 
Umræðan, orðin og munnsöfnuður fólks í garð samferðafólks okkar er svo óforskammaður og réttlætingin slík að ég velti fyrir mér hver arfleifð þessa verði til komandi kynslóða.⠀ 
⠀ 
❗️Byrjum á að taka til í garðinum okkar áður en við ráðumst á tún annarra. Eða er þín skoðun og sýn á lífið sú eina rétta?⠀ 
Ert þú hinn eini sanni æðsti dómur?⠀ by @sara_odds
3
3 years ago
Download
 by @sara_odds
1
3 years ago
Download
Full af eldmóð og ákafa æskunnar leggjum við af stað út í lífið, ætlum að sigra fjallið. Toppurinn blasir við, smá áskorun en við, ung og ódauðleg, með stóra drauma og sterkan hug stefnum á tindinn.⠀
⠀
❤️‍🔥Innifalið í eldi æskunnar er að ætla sér að sigra heiminn, óhjákvæmilega sem betur. 
Við lítum niður, setjum hausinn undir okkur og leggjum af stað.⠀
⠀
Eðli málsins samkvæmt mætum við ólíkum áskorunum á leiðinni, fæstar sjáum við fyrir, enda ógerlegt að ætla einhverjum það. Svo hefur lífið tilhneigingu til að fara öðruvísi en við ætlum, þekkt stærð sem gleymist hratt.
⠀
En stóri draumurinn lifir líkt og eldur æskunnar. Það þarf bara að ráðast í þessi verkefni, setja hausinn undir sig og halda áfram, upp á topp. Hugarfar sigurvegara.⠀
⠀
🆘 Við týnumst á leiðinni.⠀
Með fókus á smáatriði, bitbein sem skipta engu máli þegar upp er staðið. 
Og elsku egóið þvælist reglulega fyrir. Gamlar hugmyndir um hvernig ferðalagið “átti að vera” skyggir á ævintýrið og við töpum áttum í hégóma hversdagsins. Festumst í skurði, drullu og öðru ómerkilegu. Hreinlega týnumst.⠀
⠀
⬇️ Ef þú horfir bara niður, á jörðina og gleymir að horfa upp, þá er erfitt að sjá í hvaða átt þú stefnir. ⠀

➡️ Og ekki bara það. Heldur gleyma flestir mikilvægasta atriðinu. Að tékka sig inn hjá sjálfinu. Og hvað þýðir það?⠀
⠀
⬆️ Jú, að líta upp og spyrja sig:⠀
Hvað vil ég í dag?⠀
Hvað hef ég lært um mig?⠀
Hver er ég eftir alla þessa reynslu og raunir?
Er ég að geyma eitthvað sem er ekki mitt? ⠀
⠀
Draumar, von og þrá, STÓRA PLANIÐ tekur breytingum samhliða ferðalaginu. En það er nánast ógerlegt að ætla einhverjum að hafa skýra mynd af ferðalaginu áður en lagt er af stað. Samt gerum við kröfu um það og rífum okkur og aðra niður þegar dæmið gengur ekki upp.⠀
⠀
✅Það má skipta um skoðun.⠀
✅Það má taka aðra stefnu.⠀
✅Þú mátt hafa aðrar þarfir, langanir, áherslur og drauma en þú gerðir áður.
Kannski langar þér miklu frekar á sléttuna eða bara inn í skóg. Og það má.
⠀
🌟Nýr áfangastaður gerir kröfu um að þú lítir upp, horfir í kringum þig, í heiðarleika og hugrekki og skoðir hver þú ert í dag.⠀

Og hugsanlega þarftu að fara yfir búnaðinn, sækja vistir, annan vegvísi, áttavita og jafnvel nýjan fararstjóra.🧭 by @sara_odds
5
3 years ago
Download
×

Download all media on this page

Photos Videos
back to up