Instagram story viewer> @sarasnaedis> Tagged
POSTS STORIES REELS TAGGED
Sara Snædís ráðin forstöðumaður þjálfunar hjá Hreyfingu ⭐

Það er okkur sönn ánægja að kynna Söru Snædísi Ólafsdóttur sem forstöðumann þjálfunar hjá Hreyfingu.

Síðustu ár hefur Sara byggt upp @withsaraofficial , öflugan heilsu- og æfingavettvang sem hefur vaxið í sterkt samfélag og hjálpað þúsundum einstaklinga að tileinka sér hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl. Að baki þeirri vegferð liggur margra ára reynsla úr heilsu- og þjálfunargeiranum, bæði sem þjálfari og stjórnandi hér heima og erlendis. Withsara heldur áfram að lifa góðu lífi og þróast samhliða hlutverki hennar hjá Hreyfingu.

Sara mun leiða þjálfunarframboð Hreyfingar og áframhaldandi þróun þess, auk þess að halda utan um öflugan hóp framúrskarandi þjálfarahóps. Sara er ekki ókunn Hreyfingu en hún var hluti af þjálfarateymi okkar fyrir um tíu árum og snýr nú aftur með enn meiri reynslu, þekkingu og kraft í farteskinu.

Sara hefur nú þegar hafið störf og við erum einstaklega spennt fyrir þessum nýja kafla.

Vertu hjartanlega velkomin aftur, Sara Snædís! 💛
17
back to up