Instagram story viewer> @thorgerdurk> Posts
19.4K
followers
3150
following
🇮🇸 Utanríkisráðherra / Minister for Foreign Affairs of Iceland @utanrikisthjonustan 🇮🇸
🧡 Formaður @vidreisn / Leader of the Liberal Reform Party 🧡
POSTS STORIES REELS TAGGED
Ég hvet ykkur til að taka þátt í Strandhreinsun Íslands, sem er átak á vegum stjórnvalda til að hreinsa strandlengjuna af plasti og öðrum úrgangi 🌊

Ég vil einnig vekja athygli á alþjóðlegri ráðstefnu um plastmengun í hafi, sem fram fer í Hörpu dagana 20. – 22. október nk. Hvet ykkur til að taka þátt 🫶🏼 by @thorgerdurk
6
16 hours ago
Download
Öflugt atvinnulíf er undirstaða öflugs samfélags.

Þrátt fyrir að vera fámenn eru möguleikar okkar gríðarlegir. Íslensk fyrirtæki hafa aftur og aftur sýnt að þau geta staðið í fremstu röð á heimsvísu. Þau skapa störf, verðmæti og tækifæri sem standa undir lífskjörum okkar og þeirri velferð sem við viljum búa við.

Ég hef alla tíð trúað á kraftinn í frjálsu og öflugu atvinnulífi. Hlutverk stjórnmálanna er að skapa því góð skilyrði til vaxtar, ryðja úr vegi óþarfa hindrunum og tryggja að íslensk fyrirtæki hafi tækifæri til að vaxa og dafna, bæði heima og erlendis.

Þess vegna er eitt af mikilvægustu verkefnum mínum sem utanríkisráðherra að opna dyr fyrir íslenskt atvinnulíf, styrkja viðskiptatengsl og fjölga tækifærum íslenskra fyrirtækja á erlendum mörkuðum.

En við þurfum líka að vinna heimavinnuna. Ríkisstjórnin hefur sett fram metnaðarfulla atvinnustefnu til ársins 2035 með 35 aðgerðum til að styrkja samkeppnishæfni Íslands, efla nýsköpun og útflutning og skapa betri skilyrði fyrir fjárfestingar og verðmætasköpun um allt land. Við erum að einfalda regluverk, greiða fyrir leyfisveitingum og vinna að því að draga úr óþarfa kostnaði og hindrunum í rekstri fyrirtækja. Samhliða leggjum við áherslu á stöðugleika í efnahagsmálum, enda er fyrirsjáanleiki ein mikilvægasta forsenda fjárfestinga og vaxtar.

Það á ekki að vera flóknara en nauðsyn krefur að reka fyrirtæki á Íslandi, skapa störf eða hrinda góðri hugmynd í framkvæmd.

Nú er ég stödd í Minneapolis í Bandaríkjunum þar sem ég leiði viðskiptasendinefnd íslenskra fyrirtækja sem eru að kynna sér horfur í bandarísku efnahagslífi og sækja fram á alþjóðlegum mörkuðum. Það er bæði ánægjulegt og hvetjandi að sjá þann kraft, metnað og hugvit sem býr í íslensku atvinnulífi.

Því þegar íslensk fyrirtæki ná árangri úti í heimi skilar það sér heim. Í fleiri störfum, meiri verðmætasköpun og sterkari stoðum undir íslenskt samfélag.

Verðmætasköpun er forsenda velferðar. Og það er þannig sem við byggjum upp sterkara Ísland 🇮🇸 by @thorgerdurk
1
3 days ago
Download
Á alþjóðadegi stúlkubarnsins (e. International Day of the Girl Child) hugsa ég sérstaklega til stúlkna í Afganistan, þar sem talibanar hafa komið á kynjaaðskilnaðarstefnu og svipt þær grundvallarréttindum, meðal annars til menntunar.

Allar stúlkur eiga rétt á að láta drauma sína rætast. by @thorgerdurk
10
6 days ago
Download
Orð skipta máli. Og stundum er einfaldlega komið að því að segja hlutina eins og þeir eru.

Ég settist niður með blaðamanni Reykjavík Grapevine og ræddi ræðu mína á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, viðbrögðin við henni og ekki síst mikilvægi þess að standa vörð um alþjóðalög, mannréttindi og þau gildi sem við Íslendingar höfum lengi haft að leiðarljósi.

Við lifum á tímum þar sem öfgarnar verða sífellt háværari og frjálslynd öfl mega ekki láta undan síga. Ég er sannfærð um að rödd Íslands skiptir máli, líka þótt við séum fámenn þjóð. Við eigum ekki að vera hrædd við að láta hana heyrast.

Takk fyrir gott samtal @rvkgrapevine 🇮🇸 by @thorgerdurk
3
8 days ago
Download
Til hamingju / Congratulations / Félicitations Anne Carson! 

Við Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada, áttum frábæran fund í ráðuneytinu í dag 🇮🇸🇨🇦 og það var viðeigandi að fagna kanadísk-íslenska skáldinu Anne Carson, sem í dag hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. 

Kanada er okkur Íslendingum mikilvægur vinur og bandamaður - og við stefnum á enn frekara samstarf á milli landanna. Á óvissutímum skipta sterk tengsl við góða vini öllu máli 🫱🏻‍🫲🏼 by @thorgerdurk
9
8 days ago
Download
Vinátta milli ríkja byggir á trausti og samtali. Það var því ánægjulegt að taka á móti Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands í dag 🇮🇸🇺🇸

Samband Íslands og Bandaríkjanna stendur styrkum fótum. Við eigum langa sögu samstarfs í öryggis- og varnarmálum, sameiginlega hagsmuni á norðurslóðum og mikil tækifæri til að efla enn frekar viðskipti og samstarf ríkjanna.

Við ræddum einnig alþjóðamálin almennt og ég ítrekaði gildi okkar Íslendinga um mikilvægi þess að standa vörð um alþjóðalög, mannréttindi og þau gildi sem lýðræðisríki byggja samstarf sitt á.

Það hefur verið sérstakt áherslumál mitt í embætti utanríkisráðherra að styrkja tengsl Íslands við okkar nánustu vina- og bandalagsríki beggja vegna Atlantshafsins. Það mun ég halda áfram að gera 🫱🏻‍🫲🏼 by @thorgerdurk
18
10 days ago
Download
Í 12 ár gerði Sjálfstæðisflokkurinn ekkert, við ætlum að klára innleiðinguna á bókun 35 og tryggja þín réttindi 🤝 taken in Reykjavík, Iceland by @thorgerdurk
7
10 days ago
Download
Ég tók á móti Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hér á landi í dag og mun funda með honum á morgun 🫱🏻‍🫲🏼 Welcome to Iceland @secrubio 🇮🇸🇺🇸 by @thorgerdurk
31
11 days ago
Download
Það eru forréttindi að fá að eldast og halda áfram að læra. Bæði af því sem gengur vel og því sem reynist snúnara. Og eins og ég hef sagt er reynsla vanmetið fyrirbæri 😎

Ég er þakklát fyrir hvert ár. Fyrir fólkið mitt, fjölskylduna og vinina, fyrir verkefnin sem ég fæ að takast á við og fyrir allt það sem lífið heldur áfram að kenna mér.

Tek því nýju aldursári fagnandi og er óendanlega þakklát ❤️ by @thorgerdurk
58
13 days ago
Download
Allt fyrir Ísland 🇮🇸

Góðir vinir og mikilvægir bandamenn komu saman hjá okkur á Keflavíkurflugvelli í dag á varnarmálaráðherrafundi JEF-ríkjanna, auk þátttöku Kanada og Úkraínu 🇮🇸 🇬🇧 🇩🇰 🇫🇮 🇪🇪 🇱🇻 🇱🇹 🇳🇱 🇳🇴 🇸🇪 🇨🇦 🇺🇦

Á óvissutímum skiptir miklu fyrir Ísland að eiga trausta vini, standa þétt með þeim og styrkja samstarfið um öryggi okkar allra. by @thorgerdurk
5
14 days ago
Download
Prost! 🍻

Sjá viðburð í fyrstu athugasemd 🔗 by @thorgerdurk
12
16 days ago
Download
Gleymum ekki sögunni. Mannréttindi eru aldrei sjálfsögð. Þau þarf að verja. by @thorgerdurk
15
17 days ago
Download

Download All

Save the photos and videos currently loaded on this page.

0Photos
0Videos
Ready to download 0 / 0

Keep this tab open until your download is ready.

back to up